Er ríkisstjórnin orðin hringlandi galin?

frettinInnlent, Loftslagsmál, Stjórnmál1 Comment

Jón Magnússon skrifar:

Fjórir ráðherrar kynntu í gær harðdrægari áætlun í loftslagsmálum, en áður hefur sést, gegn hagsmunum neytenda og framleiðenda.

Margt vekur athygli en þá helst, að ríkisstjórnin ætlar að banna nýskráningu bensín- og díselbíla eftir árið 2028. 

Ríkisstjórnin er þar með kominn í hóp þeirra sem trúa skilyrðis- og vitsmunalaust á að loftslagsguðinn sé reiður og það sé nauðsynlegt að friða hann með fórnum sem lenda alltaf harðast á neytendum. 

Eftir einn kaldasta vetur í manna minnum og vorhret, sem á sér ekki sinn líka, þá finnst ríkisstjórninni það helst verða til varnar verða vorum sóma, að banna fólki margt af því sem hingað til hefur verið talið sjálfsagt og fellur undir eðlileg mannréttindi og valfrelsi fólks í lýðræðislandi. 

Í gær var ég á fundi í Sjálfstæðishúsinu og horfði á málverk af þeim fyrrum formönnum flokksins, Ólafi Thors, Bjarna Benediktssyni og Jóhanni Hafstein, sem ég var svo lánssamur að kynnast og þótti mikið til þeirra allra koma. Aldrei hefði þessum mönnum dottið í hug að binda svona klyfjar á þjóðina eða víkja svo rækilega frá grundvallarstefnu Sjálfstæðisflokksins um sókn til betri lífskjara, einstaklings- og athafnafrelsis og valfrelsi fólks og þessi volaða ríkisstjórn stendur nú fyrir og boðar.

Er virkilega svo komið, að forusta Sjálfstæðisflokksins sé svo kyrfilega gengin í loftslagsbjörgin, að henni sé og verði ekki við bjargandi? 

One Comment on “Er ríkisstjórnin orðin hringlandi galin?”

  1. Það er nú erfitt að þurfa að kyngja því enn ég er nú bara algjörlega þessum skrifum hjá þér Jón Magnússon.
    Þetta er sennilega ein af fáum vel skrifuðum greinum eftir þig „batnandi manni er best að lifa“

    Þetta segir mér bara eitt að þú áttir kannski að endurskoða stuðnung þinn við þessa frímúrarareglu Sjálfstæðisflokkinn sem þú hefur stutt svo vel í gegnum tíðina.

    Éins og ég hef sagt áður og segi það enn, fólk þarf að rísa upp og steypa af stóli þessu landráðafólki sem stýrir landinu áður enn þetta lið mun stórskaða lífskjör fólksins á Íslandi. Það þurfa hausar að fjúka svo einfallt er það.

Skildu eftir skilaboð