Alþingi samþykkir frumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra: bætt þjónusta og betri kjör fyrir örorkulífeyrisþega

frettinAlþingi, InnlentLeave a Comment

Alþingi samþykkti í gær frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um einfaldara og réttlátara örorkulífeyriskerfi. Ráðherra kynnti breytingarnar í apríl undir yfirskriftinni „Öll með“.

Breytingarnar fela í sér bætta þjónustu, mikilvæga hvata til atvinnuþátttöku og bætt kjör með betra og einfaldara greiðslukerfi. Þá er stuðningur aukinn við fólk meðan á endurhæfingu þess stendur, samvinnu þjónustuaðila komið á og áhersla lögð á að hindra að fólk falli á milli kerfa.

„Í dag urðu þáttaskil. Ákall hefur verið eftir því í ár og áratugi að kerfinu yrði breytt og það gerðist í dag. Til hamingju við öll og til hamingju Ísland,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

„Með breytingunum tökum við betur utan um fólk en áður og búum til hvata til að gera því kleift að blómstra. Grunnhugsunin er sú að við séum öll með og skiptum öll máli. Áherslan í nýja kerfinu er á að draga úr hindrunum og aðstoða fólk sem vill og getur stundað atvinnu að gera það – en ekki síður að halda utan um þau sem ekki taka þátt á vinnumarkaði,“ segir Guðmundur Ingi.

95% örorkulífeyrisþega fá hærri greiðslur í nýja kerfinu

„Við erum sömuleiðis að umbylta kerfinu sem heldur utan um þau sem þurfa á endurhæfingu að halda – bæði með því að tryggja samfelldar greiðslur til fólks og með því að einstaklingar með flóknar þjónustuþarfir eru leiddir á milli þjónustuaðila. Þetta eru afar mikilvægar breytingar sem snerta fólk á öllum aldri og út um allt land, auk þeirra sem kunna að slasast og veikjast í framtíðinni,“ segir ráðherra enn fremur.

Nýja kerfið tekur gildi þann 1. september 2025 enda viðamikill undirbúningur sem þarf að eiga sér stað áður til að tryggja hnökralaus skipti á milli greiðslukerfa.

Skildu eftir skilaboð