Líkur á aukaverkunum í kjölfar ungbarnabólusetninga veldisvaxa með fleiri sprautum

frettinBólusetningar, RannsóknLeave a Comment

Þorgeir Eyjólfsson skrifar:

The Defender greinir frá niðurstöðum ritrýndar rannsóknar í International Journal of Vaccine Theory, Practice and Research sem kallar á endurskoðun fyrirkomulags barnabólusetninga. Niðurstöðurnar sýna með 99,99% vissu að eftir því sem barn á fyrsta ári fær fleiri sprautur á einum og sama deginum aukast líkur barnsins margfalt (veldisvöxtur) á að fá sýkingu, öndunarfærasjúkdóm eða greinast með þroskatafir í kjölfar bólusetningar.

Niðurstöðurnar byggja á gögnum sem spanna bólusetningar á 20 ára tímabili með 1.542.076 samsetningum bóluefna sem gefin voru börnum undir eins árs aldri.

Í klippu má sjá yfirlit á vef Embættis um almennar bólusetningar barna á Íslandi frá febrúar 2024. Ljóst er að íslenska fyrirkomulagið með fleiri en einni bólusetningu í þremur heimsóknum á aldrinum þriggja til tólf mánaða leiðir til mun fleiri aukaverkana hjá ungbörnum en ella væri bólusetningum dreift.

Birt með góðfúslegu leyfi höfundar.

Skildu eftir skilaboð