Hollenskur embættismaður viðurkennir að Covid hafi verið hernaðaraðgerð

frettinCOVID-19, ErlentLeave a Comment

Hollenski þingmaðurinn Wieke Paulusma, lagði fram fyrirspurn síðustu viku til fulltrúa heilbrigðisráðuneytisins á hollenska þinginu, varðandi Covid aðgerðir, sem hún segir að hafi verið hernaðaraðgerð sem ekkert eigi skylt við heilbrigðisþjónustu.

Embættismaðurinn viðurkennir að yfirvöld hafi fengið skipun um aðgerðir frá Þjóðaröryggisstofnun Hollands(NCTV) og Atlantshafsbandalaginu(NATO.)

Fjallað er um málið á X, þar sem rifjað er upp að fyrir tæpum fimm árum eftir upphaf Covid, þá séu hlutirnir farnir að skýrast, og margt ámælisvert sé þar að finna sem kalli á rannsókn.

Svar fulltrúa Heilbrigðis-, velferðar- og íþróttaráðuneytisins við fyrirspurninni má lesa hér og útskýrir hún þar hvernig covid-aðgerðir voru skipulagðar af NCTV og NATO:

Úkraínska vísindakonan Sasha Latypova,  sem var með fyrirlestur hér á landi á síðasta ári, hefur einnig greint frá þessu og segir að Bandaríska varnarmálaráðuneytið ásamt Fauci, Gates, Tedros, Moderna, Pfizer, FDA, CDC, WEF, CIA og fleirum hafi af ásetningi og með glæpsamlegum hætti, tekið þátt í fjárkúgun, ólöglegum auglýsingum, svikum og fjöldamorðum á milljónum saklausra manna um allan heim:

Dr. Peter McCullough, einn fremsti hjartasérfræðingur heims, hefur einnig greint frá glæpsamlegum vinnubrögðum heilbrigðisstarfsfólks á Covid tímabilinu. Til að mynda hafi Covid tilfelli og dauðsföll verið fölsuð til að vekja ótta meðal íbúa. Yfirvöld neituðu öruggri snemmmeðferð sem olli dauða milljóna manna ásamt því að þvinga árangurslausu og skaðlegu Covid „bóluefni“ upp á heiminn.

Þeir ritskoðuðu alla sem deildu heilsufarsupplýsingum um snemmmeðferðir og sniðgengu alla sem vöruðu við hættunni af Covid „bóluefninu.“ Ríkisstjórnir frömdu glæpi gegn mannkyninu af ásettu ráði, segir Dr. McCullough:

Bill Gates þarf að mæta fyrir dómstól í Hollandi þann 27. nóvember næstkomandi vegna bóluefnaskaða, en hann á stóran hlut í lyfjafyrirtækjum og var einn af þeim sem að stóð fyrir bóluefnaherferða heimsins. Fólk er nú byrjað að kalla eftir Nuremberg réttarhöldum yfir höfðingjum heimsins eins og sumir kalla, sem allir eiga það sameiginlegt að vera milljarðarmæringar og hafa hagnast á gölluðum og skaðlegum bóluefnum:

Skildu eftir skilaboð