Niðurstöður netkosninga til forseta Íslands – Halla hefði unnið í öllum kosningakerfum

frettinInnlent, KosningarLeave a Comment

Fréttatilkynning:

Netkosningar til forseta Íslands voru haldnar dagana 27. maí til 1. júní síðastliðinn, þar sem almenningi var boðið að kjósa til forseta eftir ólíkum kosningakerfum og fræðast um þau kerfi á vefsíðunni https://forseti2024.politicaldata.org/ og nú liggja niðurstöður netkosninganna fyrir.

Alls bárust 2,877 atkvæði (svör) í netkosningunni og dreifing á fylgi frambjóðenda í úrtakinu var mjög svipuð því sem kannanir með handahófsúrtaki sýndu á sama tíma. Eins og lagt var upp með vigtuðum við svör samt sem áður til að endurspegla niðurstöður forsetakosninganna, en það hafði lítil áhrif á neðangreind úrslit. Eftir sem áður er þetta úrtak sjálfvalið og því t.d. mun hærra hlutfall svarenda með háskólamenntun heldur en meðal íslenskra kjósenda í heild. Því ber að taka neðangreindum niðurstöðum með þeim fyrirvara.

Í netkosningunni gátu svarendur kosið sér forseta bæði með núverandi kosningakerfi og með öðrum kosningakerfum: raðvali með varaatkvæði (e. Alternative Vote), raðvali með Borda talningu (e. Borda count) og samþykktarkosningu (e. Approval Voting). Sömuleiðis spurðum við svarendur sérstaklega í upphafi hvaða frambjóðanda þeir vildu helst sjá sem forseta, óháð því hvernig þeir ætluðu að kjósa.

Niðurstöðurnar voru þær að 18,4% svarenda sögðust ætla að kjósa „taktískt" í kosningunum í núverandi kerfi; þ.e., að kjósa annan frambjóðanda en þeir sögðust helst vilja sjá sem forseta. Af efstu sex frambjóðendunum í kosningunum gilti þetta mest um þau sem sögðust helst vilja sjá Baldur Þórhallsson sem forseta: 37,8% sem sögðu það sögðust ætla að kjósa annan frambjóðanda. Skammt á eftir komu þau sem helst vildu Jón Gnarr (35,4%) og þau sem helst vildu Arnar Þór Jónsson (32,2%) en hlutfallið var mun lægra fyrir þau sem vildu helst einhvern af efstu þremur frambjóðendunum.

Af þeim sem vildu helst Baldur Þórhallsson sem forseta sögðust 18,7% ætla að kjósa Höllu Tómasdóttur, 9,3% Höllu Hrund Logadóttur og um 5,9% Katrínu Jakobsdóttur. Af þeim sem vildu Jón helst sögðust 18,1% ætla að kjósa Höllu Tómasdóttur, 7,6% Höllu Hrund og 5,9% Katrínu Jakobsdóttur. Þessi tilhneiging til taktískra kosninga virðist hafa aukist eftir því sem leið á vikuna fram að kosningum: af þeim 1741 sem svöruðu könnuninni mánudaginn 27. maí sögðust 14,4% ætla að kjósa taktískt en af þeim 579 sem svöruðu könnuninni föstudaginn 31. maí sögðust 26,5% ætla að gera það. Þetta var sérstaklega áberandi meðal þeirra sem vildu helst Höllu Hrund: á mánudeginum sögðust 4,1% þeirra ætla að kjósa annan frambjóðanda en á föstudeginum var það hlutfall komið upp í 15%. Af þessum hópi sögðust í heild um 5,3% ætla að kjósa Höllu Tómasdóttur en mjög lítill hluti aðra frambjóðendur.

Halla Tómasdóttir græddi talsvert á taktískri kosningu en hefði unnið í öllum kosningakerfum

Samkvæmt netkosningunni græddi Halla Tómasdóttir verulega á þessari taktísku kosningu: um 26,7% svarenda (þegar gögnin eru vigtuð til að endurspegla úrslit kosninganna, eins og í öðrum niðurstöðum) sögðust helst vilja sjá hana sem forseta, eða um 8 prósentustigum færri en sögðust hafa kosið hana. Hins vegar var þetta hlutfall hæst allra frambjóðenda: næst kom Katrín Jakobsdóttir með 23,2%, sem bendir til þess að Halla hefði sigrað kosningarnar með um 3,5 prósentustigum ef enginn hefði kosið taktískt.

Niðurstöðurnar sýna líka að Halla Tómasdóttir hefði að líkindum sigrað kosningarnar í öllum kosningakerfum: í raðvali með varaatkvæði, þar sem atkvæðum er endurúthlutað til frambjóðenda sem settir eru næst í forgang hjá kjósendum þangað til einn frambjóðandi er kominn með meirihluta atkvæða, hefði Jón Gnarr verið útilokaður síðastur (með 25,1% atkvæða á þeim tímapunkti á móti 28,9% Katrínar Jakobsdóttur) og Halla Tómasdóttir sigrað Katrínu Jakobsdóttur í lokaumferðinni með 63,6% atkvæða gegn 36,4%.

Af efstu sex frambjóðendum tapar Baldur Þórhallsson mest á taktískri kosningu – í öðru sæti í tveimur öðrum kerfum

Sé forgangsröðun svarenda í þessu kerfi notuð til að álykta hvaða frambjóðanda þeir hefðu kosið í mögulegu „einvígi" tveggja frambjóðenda í seinni umferð (út frá því hvorum frambjóðandanum þeir röðuðu ofar) kemur í ljós að Halla Tómasdóttir hefði sömuleiðis sigrað alla aðra frambjóðendur í seinni umferð. Næst því að sigra hana þar kemst Baldur Þórhallsson með 38,9% atkvæða. Hins vegar hefði Baldur, miðað við þessar niðurstöður, sigrað Katrínu Jakobsdóttur í slíku einvígi, með um 52,6% atkvæða, sem og Höllu Hrund Logadóttur (með 58,4% atkvæða) og Jón Gnarr (með um 57,6% atkvæða). Katrín Jakobsdóttir hefði hins vegar naumlega sigrað Höllu Hrund (með 51,4%) og Jón Gnarr (með 50,9%), en síðarnefndi munurinn er ekki tölfræðilega marktækur.

Ofangreint endurspeglast sömuleiðis í því að Baldur Þórhallsson hefði verið í öðru sæti í raðvali með Borda talningu (þar sem hvert sæti veitti frambjóðendum ákveðið mörg stig), með 16725 stig (um 15,1% af öllum gefnum stigum) gegn 19483 stigum Höllu Tómasdóttur (um 17,6%) en næst hefðu komið Jón Gnarr og Halla Hrund, með 14998 og 14400 stig. Katrín Jakobsdóttir hefði fengið 13708 stig í slíkri kosningu, miðað við vigtaðar niðurstöður þessarar netkosningar.

Þá hefðu 61,3% kjósenda veitt Höllu Tómasdóttur atkvæði sitt í samþykktarkosningu (þar sem svarendur gátu merkt við eins marga frambjóðendur og þeim sýndist) og 52,1% Baldri Þórhallssyni, en aðrir frambjóðendur nutu stuðnings minnihluta kjósenda í þeirri kosningu (Katrín Jakobsdóttir kom næst með 44,3% og Halla Hrund með 44,1%).

Í raðvali með varaatkvæði röðuðu 8,6% svarenda öðrum frambjóðanda en þeir vildu helst í 1. sætið, samanborið við 18,4% sem kusu annan frambjóðanda en þau vildu helst í núverandi kerfi. Í raðvali með Borda talningu var þetta hlutfall 9,4%, sem bendir til þess að í kosningakerfi með raðvali gæti taktísk kosningahegðun verið um helmingi minni en í núverandi kerfi.

Athygli okkar vakti að enginn svarendur sem höfðu lokið háskólamenntun og svarendur sem höfðu ekki lokið slíkri menntun virtust kjósa taktískt í jafnríkum mæli.

Ef þú hefur einhverjar spurningar um netkosninguna og nánari niðurstöður hennar getur þú beint spurningum til ábyrgðaraðila hennar:

Viktors Orra Valgarðssonar ([email protected] eða [email protected]), nýdoktors í stjórnmálafræði (Leverhulme Early Career Fellow), stjórnmálafræðideild University of Southampton.

Indriða H. Indriðasonar (
[email protected]), prófessors í stjórnmálafræði, stjórnmálafræðideild University of California, Riverside

Skildu eftir skilaboð