Einungis Svíþjóðardemókratar leggjast gegn meiri valdaflutningi til ESB

Gústaf SkúlasonErlent, EvrópusambandiðLeave a Comment

Gengið er til þingkosninga ESB-þingsins í dag í mörgum löndum. Í Svíþjóð hefur verið gerð samantekt á því, hvernig sænsku þingflokkarnir hafa kosið í málum varðandi flutning á fullveldi Svíþjóðar til ESB í Brussel. Kom í ljós að sjö af átta flokkum greiða yfirleitt sjálfkrafa atkvæði með slíku valdaframsali. Einungis Svíþjóðardemókratar ganga einna helst gegn slíkum tillögum.

Á síðasta fimm ára kjörtímabili hafa sænskir ESB-þingmenn greitt atkvæði um meira en 300 ný „alríkislög.” Þau lög eru síðan færð inn í lagabálk allra aðildarríkja óháð vilja íbúanna.

Fimm sænsku flokkanna – Sósíaldemókratar, Móderatar, Miðflokkurinn, Kristdemókratar og Frjálslyndir – sem tilheyra breiðu miðjubandalagi kristinna lýðræðislegra og íhaldssamra, jafnaðarmanna og frjálslyndra flokka á ESB-þinginu, greiða atkvæði með nýjum ESB-lögum í meira en 19 af hverjum 20 atkvæðagreiðslum.

Umhverfisflokkurinn, sem tilheyrir Græningjahópnum á ESB-þinginu og breiðfylkingin er oft í samstarfi við, hefur greitt atkvæði með 85% allra nýrrar ESB-löggjafar. Vinstriflokkurinn hefur samþykkt tæplega tvo þriðju hluta nýrrar ESB-löggjafar. Svíþjóðardemókratar segjast hafa stutt ný lög ESB í minna en helmingi tilvika. Flokkurinn er líka sá sem greiddi atkvæði gegn flestum nýjum ESB-lögum og sat oftast hjá.

Frá Svíþjóð hefur því nánast engin mótstaða verið hjá þingmönnum fyrra tímabils við auknum völdum til „alríkisins.”

Sjá nánar hér

author avatar
Gústaf Skúlason

Skildu eftir skilaboð