Landkjörstórn tilkynnti niðurstöðu forsetakosninganna núna um hádegið í dag:
„Það tilkynnist hér með skv. 107. gr. kosningalaga nr. 112/2021 að niðurstaða talningar atkvæða við forsetakjör þann 1. júní 2024 er svohljóðandi:“
Gild atkvæði: 214,318
- Arnar Þór Jónsson 10,881 atkvæði, eða 5.05%
- Ásdís Rán Gunnarsdóttir 394 atkvæði, eða 0.18%
- Ástþór Magnússon Wium 465 atkvæði, eða 0.22%
- Baldur Þórhallsson 18,030 atkvæði, eða 8.36%
- Eiríkur Ingi Jóhannsson 101 atkvæði, eða 0.05%
- Halla Hrund Logadóttir 33,601 atkvæði, eða 15.58%
- Halla Tómasdóttir 73,182 atkvæði, eða 33.94%
- Helga Þórisdóttir 275 atkvæði, eða 0.13%
- Jón Gnarr 21,634 atkvæði, eða 10.03%
- Katrín Jakobsdóttir 53,980 atkvæði, eða 25.03%
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir 1,383 atkvæði, eða 0.64%
- Viktor Traustason 392 atkvæði, eða 0.18%
- Auðir seðlar 803 atkvæði, eða 0.37%
- Ógildir seðlar af öðrum ástæðum 514 atkvæði, eða 0.19%
- Samtals auðir og ógildir 1,317 atkvæði, eða 0.61%
Samtals voru atkvæðin 215,635 en fjöldi kjósenda á kjörskrá eru 266,935. Kjörsókn var því 80.8%. Helmingur frambjóðenda hlutu atkvæði undir 1.500 sem er tala meðmælenda sem þarf að skrá til að geta tekið þátt í framboði.
Landkjörstjórn kemur saman þann 25. júní n.k. til að úrskurða um gildi ágreiningsatkvæða og lýsa úrslitum kosninganna. Atkvæðatölur gætu því breyst eitthvað lítillega eftir það.
Kjörtímabili Guðna Th. Jóhannessonar lýkur 31. júlí og mun Halla Tómasdóttir hefja fjögurra ára kjörtímabil í embætti forseta Íslands þann 1. ágúst næst komandi.
One Comment on “Halla Tómasdóttir kjörin sjöundi forseti Íslands”
Jæja, þá fá glóbalistarnir sýna dúkku sem er enn einn af þessum fulltrúum sem er af sjálfsögðu vita gagnslaus og mun halda áfram að hengja orður á elítuna og fylgja stefnu stjórnvalda í einu og öllu, þessi manneskja er ekkert annað enn smjaðurlegt bros og innihaldslausar umbúðir eins og forveri hennar.
Af öllum sem voru í framboði var í rauninni bara einn heilsteyptur einstaklingur sem hafði einhverja skynsemi í kollinum og var tilbúinn að nýta þetta embætti til einhvers gagns og það var hann Ástþór Magnússon. enn auðvitað sannar þessi blessaða þjóð hvað hún er víðáttu heimsk eins og úrslit kostningana báru í för með sér, hér er öllum stundum alið á múgheimsku sem er svo auðvelt þar sem nánast enginn er lengur sjálfstætt hugsandi, svo það er auðvelt að stýra hjærðinni með skoðunarkönnunum og sjúklegu áróðurhatri fjölmiðla og stjórnvalda á þeim sem vilja bæta samfélagið og gera eitthvað af viti í bland við skynsemi.