Jón Magnússon skrifar:
Osló er ekki örugg lengur segir lögreglustjórinn Osló og vill að stjórnvöld ræði málið. Vandinn í Osló er fyrst og fremst að kenna hælisleitendum og annarrar kynslóðar hælisleitenda.
Í júlí hafa borgaryfirvöld í Stokkhólmi m.a. þurft að glíma við illvígar óeirðir hælisleitenda frá Eritreu. Ágreiningsmálið þar á bæ er á milli þeirra sem styðja einræðisstjórnina í Eiritreu og hinna sem eru á móti henni.
Sama er upp á teningnum í nokkrum borgum í Þýskalandi varðandi innbyrðis átök Eritreumanna.
Athyglisvert, að það skuli vera stór hópur "flóttafólks" frá Eritreu sem lýsir yfir stuðningi við stjórninni í landinu, sem þau sögðust hafa flúið frá. Fátt sýnir betur ruglið, sem Evópubúar láta yfir sig ganga og uppskera í samræmi við það.
Svona fréttir frá nágrannalöndum okkar eru orðnar svo algengar, að fjölmiðlar greina almennt ekki frá þeim nema þeir sem eru í nærumhverfinu.
Hvað skyldu verða mörg ár þangað til lögreglustjórinn í Reykjavík krefst umræðna eins og lögreglustjórinn í Osló?
Við stefnum hraðbyri í að lenda í sömu ef ekki verri vandræðum en Osló, Stokkhólmur og Kaupmannahöfn vegna hælisleitenda vegna þess að stjórnvöld sofa á verðinum og galnir stjórnmálamenn halda að þeir sýni sérstaka manngæsku með því að hlaða inn í landið erlendum hlaupastrákum.
Er ekki kominn tími til að skipta um fólk til að stjórna. Fá fólk sem lítur á það sem hlutverk sitt að gæta hagsmuna fólksins sem er í landinu.
2 Comments on “Hættan færist nær”
Var ekki Lögreglustjórinn að fullyrða að mesta hættan á Íslandi stafi af öfga hægriöflum!
Þetta eru svo miklir bullustampar að hálfa væri nóg, ég hefði nú haldi að mesta hættan sem stafi að Íslensku þjóðinni komi frá fólkinu sem starfi niður á alþingi hvort sem við erum að tala um innanríkismál eða utanríkismál!
Úkraínuáróðurs skítadreifari RUV fær endalausa umfjöllun!
https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2023-08-09-thad-erfidasta-sem-eg-hef-gengid-i-gegnum-389449
Blessaður maðurinn er svo mikið fórnarlamb!