Eldgos hófst við Sundhnúksgígaröðina klukkan 23:14 í gærkvöldi, 20. nóvember eftir að aukin skjálftavirkni mældist á svæðinu á ellefta tímanum og merkja mátti breytingu á þrýstingi við borholur í Svartsengi. Búið er að virkja neyðarstig almannavarna og samhæfingarmiðstöð.
Staðsetning eldgossins er á svipuðum slóðum og í eldgosinu í ágúst. Talið er að gist hafi verið í um fimmtíu húsum í Grindavík undanfarnar nætur. Lögregla og almannavarnir hófu strax vinnu við að rýma bæinn og Bláa lónið sem gekk vel.
Hluti bílastæðis við Bláa lónið er þegar farinn undir hraun, ásamt þjónustuhús Bláa lónsins sem nánast allt er horfið undir hrunið.
Um er að ræða helstu bílastæði Bláa lónsins og eru þar stæði fyrir um 350 bíla auk rútustæða. Að sögn Helgu þarf að meta aðkomu að Bláa lóninu þegar þar að kemur og þá hvort möguleikar séu á að nýta annað aðgengi fyrir aðkomubíla.
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu hjá Bláa lóninu segist hafa verið í samtölum við viðbragðsaðila.
„Það er ómögulegt að segja til um tjónið á þessum tímapunkti en við munum sjá þetta betur þegar fram líða stundir og þá hvernig hægt verður að bregðast við. Það eru einhverjir bílastæðamöguleikar við lónið en við þurfum að skoða það betur í framhaldinu,“ segir Helga, í samtali við mbl.
Landsnet hefur virkjað neyðarstjórn vegna gossins
Í tilkynningu frá Landsneti kemur fram að neyðarstjórn hafi verið virkjuð.
Svartsengislína Landsnets sem tengist orkuverinu í Svartsengi rofnaði vegna hraunflæðis. Að öllum líkindum verður ekki hægt að fara í viðgerð á línunni fyrr en eldgosinu er lokið.
Flutningskerfi er komið í jafnvægi eftir rafmagnsleysi og rafmagnsflökt vegna rofs línunnar.
Þrjár varaaflsvélar eru til staðar og hægt að færa þær til Grindavíkur með stuttum fyrirvara ef Almannavarnir óska eftir því.
Landsnet hvetur íbúa á Reykjanesi til að fylgjast vel með leiðbeiningum á heimasíðum Almannavarna og orkufyrirtækja.