Vantar meira fallbyssufóður

frettinInnlendarLeave a Comment

Geir Ágústsson skrifar:

Þráteflið í Úkraínu er orðið óbærilega blóðþyrst. Frá Úkraínu berast nú fregnir um að hermenn keyri um götur borga og þvingi alla unga karlmenn sem þeir sjá inn í bíla og þeir keyrðir í burtu og á víglínurnar. Ungir karlmenn þora varla út úr húsi lengur af ótta við að vera handsamaðir og þvingaðir í herinn. Á meðan sitja Rússar á hundruð þúsunda varaliða sem hafa ekki einu sinni fengið kallið ennþá.

Það er engu líkara en að Vesturlönd séu viljandi og markvisst að magna upp átök sem hefðu aldrei átt að eiga sér stað. Hvaða hagsmuna hafa Vesturlönd af því? Er eitthvað falið inn í skápnum sem þarf að vera falið áfram? Er einhver kókaínslóð sem byrjar í Úkraínu og endar í Hvíta húsinu sem þarf að fela? Eða peningaslóð?

Senn kemur að því að Vesturlönd þurfa að átta sig á því að þau eru búin að mála sig út í horn og neyðast til að setjast við samningaborðið. Eftir því sem það dregst lengur, þeim mun hagstæðari verða þeir samningar fyrir Rússa. Þeir sem uppnefna aðra Pútín-sleikjur eru í raun að aðstoða Rússa. Nytsamir vitleysingar. Af þeim er nóg.

Skildu eftir skilaboð