Fréttir

Bændasamtökin styðja rannsókn og notkun kannabislyfja

frettinInnlendarLeave a Comment

Bænda­sam­tök Íslands styðja frek­ari rann­sókn­ir á mögu­leik­um til notk­un­ar og hag­kvæmni rækt­un­ar lyfja­hamps og kanna­bis­lyfja á Íslandi í lækn­ing­ar­skyni.

Þetta kem­ur fram í um­sögn Bænda­sam­taka Íslands við þings­álykt­un­ar­til­lögu vel­ferðar­nefnd­ar Alþing­is, um þró­un­ar­áætl­un og til­raun­ar­verk­efni fyr­ir rækt­un lyfja­hamps og notk­un kanna­bis­lyfja í lækn­inga­skyni sem var lögð fram á vorþingi.

Nokkrar umsagnir bárust velferðarnefnd Alþingis um þingsályktunartillögu um ræktun lyfjahamps og notkun kannabisefna í lækningaskyni.

Í umsögn Bændasamtaka Íslands kemur fram að samtökin „styðja það meginefni þingsályktunartillögunnar að setja á laggirnar starfshóp til að kanna breytingar á regluverki, sem gera eigi það kleift að hefja rannsóknir á möguleikum til notkunar og hagkvæmni ræktunar slíkra plantna á Íslandi í lækningaskyni“. Í tillögunni fólst að settur yrði á fót starfshópur sem hefði „það hlutverk að útbúa frumvarp sem heimili fyrirtækjum að sækja um leyfi fyrir ræktun lyfja- hamps til kannabisræktunar og fyrir framleiðslu og dreifingu á kannabislyfjum í lækningaskyni. Um verði að ræða fjögurra ára tilraunaverkefni sem hefjist 1. janúar 2024. Heilbrigðisráðherra leggi fram frumvarp þessa efnis fyrir 31. desember 2023.“

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga mælir ekki með stofnun slíks starfshóps og vísar m.a. til rannsókna, þróunar og íslenskra lyfjalaga og -reglugerða um framleiðslu lyfja. Þá sé vísindalega sannaður ávinningur af notkun kannabis í læknisfræðilegum tilgangi veikur. Hampfélagið fagnar hins vegar þingsályktunartillögunni en gerir þær breytingatillögur að vinnsla lyfjahamps sé ekki einskorðuð við Cannabis Sativa, sem hafi lágt THC-gildi, því þar með takmarkist þau yrki sem hægt sé að nota í framleiðsluna. Jafnframt segir að áríðandi sé að leyfi til að nota lyfjahamp sé ekki takmarkað við ákveðna sjúkdóma.

Í greinargerð með tillögunni er vísað til fyrirkomulags hjá Dönum en ræktun lyfjahamps þar er háð leyfi dönsku lyfjastofnunarinnar og landbúnaðarstofnunin umsagnaraðili varðandi landbúnaðarhliðina. Ríkis- lögreglan leggi mat á umsækjendur vegna ræktunarleyfa. Á fimmta tug landa hafa lögleitt kannabis til lækninga að hluta eða fullu.

Frestur til að skila umsögnum rann út í maílok en málinu var vísað til velferðarnefndar hálfum mánuði áður. Um er að ræða endurtekna þingsályktunartillögu frá 2022 en svipuð tillaga kom fyrst fyrir þingið 2017.

Skildu eftir skilaboð

Um Fréttina

Fréttin er óháður fréttamiðill sem fjallar um málefni líðandi stundar bæði innanlands og utan. Við fordæmum þöggun og skoðanakúgun, tjáningafrelsið er hornsteinn lýðræðislegs samfélags.

Ertu með áhugaverða frétt eða grein?