Afar óhugnalegt atvik átti sér stað í leik Fjölnis og Álftanes í 2. deild kvenna í knattspyrnu í Grafarvoginum í kvöld, mbl.is greinir fyrst frá.
Leikmaður Álftanes lenti í hjartastoppi á 35. mínútu leiksins en leikmaðurinn sem um ræðir er fæddur árið 2008 og því á 15. aldursári.
Í frétt mbl.is kemur fram að tveir læknar hafi verið á staðnum og að þeim hafi í sameiningu tekist að bjarga lífi leikmannskins. Leikmaðurinn gat að lokum gengið sjálfur upp í sjúkrabíl og mun dvelja á barnaspítala hringsins í nótt.
Eftir því sem Fréttin kemst næst er líðan leikmannsins góð eftir atvikum, en ákveðið var að hætta leik eftir atvikið og hefur honum verið frestað um óákveðinn tíma.