Rússland bannar LGBTQ-hreyfinguna

frettinErlent, Gústaf Skúlason1 Comment

Hæstiréttur Rússlands hefur bannað LGBTQ-hreyfinguna og tengir hana um leið við öfgastefnu. Þetta gerðist hins vegar allt í laumi og enginn fjölmiðill veit hvað var sagt í raun og veru inni í réttinum.

Í Rússlandi var tekin söguleg ákvörðun 30. nóvember. Rússneska dómsmálaráðuneytið kaus að banna LGBTQ hreyfinguna. Hæstiréttur Rússlands kaus að kalla LGBTQ hreyfinguna „öfgafulla” í yfirlýsingu eftir dóminn samkvæmt rússnesku fréttastofunni Tass:

„Dómarinn tilkynnti ákvörðunina með staðfestingu á kröfu dómsmálaráðuneytisins um að sakilgreina LBTQ-hreyfinguna sem öfgafulla.”

Gert á bak við luktar dyr

Samningaviðræðurnar um hvort banna ætti LGBTQ-hreyfinguna eða ekki fóru fram fyrir luktum dyrum og ástæðan var að sögn Tass sú, að fyrir lágu leynileg sönnunargögn. Það tók Ddómstóllinn aðeins fjórar klukkustundir að taka ákvörðun sína um að banna LBTQ hreyfinguna.

Ákvörðunin þýðir að öll starfsemi sem tengist LGBTQ hreyfingunni er bönnuð í landinu. Ákvörðunin öðlaðist gildi þegar í stað.

One Comment on “Rússland bannar LGBTQ-hreyfinguna”

  1. Vel gert hja Rússum enda þessi hreyfing móðgun við mannkynið, samkynhneigða og transfólk sérstaklega , sigla undir fölsku flaggi

Skildu eftir skilaboð