Alex Jones mættur á X: „sjáumst í fremstu víglínu baráttunnar um framtíð okkar“

frettinErlent, Gústaf SkúlasonLeave a Comment

Gústaf Skúlason skrifar:

Fimm árum eftir að hann var rekinn af Twitter er Alex Jones frá Infowar kominn aftur á samfélagsmiðilinn sem heitir X eftir að Elon Musk keypti Twitter. Núna hefur Elon Musk opnað reikning Alex Jones að nýju.

Í síðustu viku birti Tucker Carlson viðtal við Alex Jones. Þar fullyrti Carlson meðal annars, að Alex Jones sé einn mest ritskoðaði maðurinn í sögu Bandaríkjanna og það sé vegna þess, að hann gerir greiningar sem hræða valdaelítuna í landinu.

Daginn eftir hélt Elon Musk, eigandi X, atkvæðagreiðslu á X um hvort hann ætti að opna aftur reikning Alex Jones, sem hafði verið rekinn frá Twitter árið 2018. Tvær milljónir manna tóku þátt í atkvæðagreiðslunni og af þeim sögðu 70% já. Opnað var fyrir reikning Alex Jones í framhaldi. Eftir það tísti Musk:

„Fólkið hefur talað og þannig mun það verða.”

Alex Jones er núna kominn aftur á samfélagsmiðilinn. Jones hrósar Elon Musk og Tucker Carlson og segir á X-inu:

„Þið sjáið raunveruleg fyrir hverju ég stend. Tjáningarfrelsi er grundvallaratriði í frjálsu mannlegu samfélagi. Við stöndum með mannkyninu.”

„Við sjáumst í fremstu víglínu í baráttunni um framtíð okkar.”

Skildu eftir skilaboð