Gústaf Skúlason skrifar:
Í ár verða engin jólaboð og engar jólagjafir fyrir starfsmenn hjá mörgum sænskum yfirvöldum. Að minnast á jólin getur nefnilega móðgað innflytjendur.
Formlega hefur allur hinn hömlulausi fólksinnflutningur til Svíþjóðar ekki verið talinn vera hernám. Engu að síður vilja margar opinberar stofnanir ákaft afnema kristin gildi og breyta málfari og hefðum Svía til að koma til móts við kröfur múslima.
Jólin virðast bannorð í Malmö
Misjafnt er hversu langt yfirvöld eru tilbúin að ganga. Hjá Útlendingastofnun óska þeir einhverra hluta vegna „Gleðilegra helgidaga og farsældar á nýju ári“ og síðar kemur yfirlýsing um að „Jól og áramót séu að nálgast.“ Hverju sænska Útlendingastofnunin vill ná fram er nokkuð óljóst. Áramótakveðjan sem stofnunin sendir er mismunun gagnvart þeim, sem til dæmis fylgja júlíanska eða múslímska tímatalinu.
Borgaryfirvöld Malmö óska Gleðilegs nýs árs. Orðið jól virðist vera opinberlega bannað í borginni. Borgaryfirvöld skrifa á X:
„Við óskum ykkur öllum gleðilegra helgidaga og farsældar á nýju ári.“
Má ekki segja jólamatur en hins vegar leyft að segja „desemberveislan“
Þegar notandi á X veltir því fyrir sér, hvers vegna borgaryfirvöld vilja ekki nota orðið „jól“ þá svarar fulltrúi borgarinnar á X:
„Það halda ekki allir jól og við viljum höfða til allra svo við óskum öllum góðra helgidaga í staðinn.“
Hjá umboðsmanni aðskildra eru eins og venjulega gefnar „vetrargjafir“ í stað jólagjafa. Starfsmönnum er ekki boðið að jólaborði heldur eru velkomnir í „desemberveislu.“ Að mati stofnunarinnar gæti það verið aðskilnaðarstefna að kalla gjafirnar jólagjafir og veisluna jólaboð. Blaðamaðurinn Joakim Lamotte skrifar:
„Deilið þessu ef þið hlakkið líka til þess að „helgidagasveinninn“ komi til Malmö á sunnudaginn.“
Malmö kommun vägrar önska ”God Jul”. Varför? Alla firar inte jul.
— Nils Littorin (@Nils_Littorin) December 22, 2023
Kan vi hjälpas åt och önska @malmostad och @Malmosossar
en riktigt härlig, svensk
🎅🎄GOD JUL 🎄 🎅 pic.twitter.com/STh7rlRyMU
Dela om du också ser fram emot att ”helgtomten” kommer till Malmö på söndag 🎅 pic.twitter.com/i56U0IszkP
— Joakim Lamotte (@HotLamotte) December 22, 2023