Nýjustu mælingar Veðurstofu Íslands frá því á jóladag, sýna að landris í Svartsengi hafði þá náð sömu hæð og mældist dagana 11.-12. desember, eða sex til sjö dögum áður en gos braust út þann 18. desember síðastliðinn.
Jarðvísindamennirnir Þorvaldur Þórðarson og Benedikt G. Ófeigsson, segja báðir að þróun landrissins síðustu daga líkist þróuninni fyrir síðasta eldgos.
Vísbendingar eru því um að eldgos geti brotist út að nýju í kringum áramót.
Eldgos hugsanlegt rétt eftir áramót
Aðspurður segir Þorvaldur að landrisið geti ýmist endað með kvikuhlaupi, eins og varð 10. nóvember, eða gosi í líkingu við það sem varð fyrr í mánuðinum.
Spurður hvort hann telji líklegra nefnir hann eldgos.
„Þetta gæti orðið í fyrstu vikunni í janúar,“ bætir hann við.
Óvissa uppi vegna landrissins
Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir í samtali við mbl, ákveðna óvissu vera uppi, sérstaklega í ljósi landrissins.
„Það er gert ráð fyrir því að staðan verði tekin núna á milli jóla og nýárs og þá verður bara eftir atvikum gefin út ný tilkynning frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum um framhaldið,“ segir hann.
Lögreglustjórinn tilkynnti þann 22. desember að Grindvíkingar mættu halda jólin heima. Talið er að á aðfangadag hafi fólk verið í 50-60 húsum í Grindavík.
One Comment on “Vísbendingar um eldgos í Grindavík rétt eftir áramót”
Það fer ekki fram hjá neinum innrætið hjá stjórnvöldum
https://www.visir.is/g/20232508525d/telur-skyn-sam-legt-ad-reisa-varnar-garda-nordan-vid-grindavikurbae
Umræðan um kostnað var ekki mikil hjá stjórnvöldum þegar þeir reystu þennan anskotans varnargarð fyrir vini sína eigendurna af HS orku og Bláa lóninu. Ætli það hefði ekki verið nær að setja þennan varnargarð í forgang enn þann sem þeir reystu.
Helvítis fávitar!