2023: Árið þegar pendúllinn skipti um stefnu

frettinGeir Ágústsson, PistlarLeave a Comment

Geir Ágústsson skrifar:

Í mörg ár hefur pendúll umræðunnar sveiflast í eina átt - í átt að meiri og meiri pólitískum rétttrúnaði, rökstuddum með falsvísindum og órökstuddum fullyrðingum. Menn misstu vinnuna út á ásakanir, skattar til breytinga á veðrinu lagðir á og hækkaðir í sífellu, börn sett á lyf sem handsama kynþroska þeirra áður en þau ná að átta sig á samkynhneigð sinni, fullorðnir karlmannslíkamar (skilgreindir sem eitthvað annað kyn en hið raunverulega) fá að veifa sínum vindli í kvennaklefum fyrir framan litla stelpur, barnarán umborið án afleiðinga og þvert á niðurstöður réttarríkisins, mokað undir stríð í nafni friðar og reynt að stöðva loftbornar veirur með því að loka glugganum og sprauta í fólk erfðaefnum.

Ég tel að á árinu 2023 hafi tekist að höggva sprungur í mörg versin af þessu trúarbragði. Sífellt fjölgar þeim sem gagnrýna loftslagsvegferðina sem mun kosta okkur lífskjörin ef hún fær að halda áfram mikið lengur. Mér finnst líklegt að þeim fjölgi í hópi foreldra sem hika við að gera börn sín að ævilöngum lyfjaþrælum lyfjarisanna. Mönnum sem hafði verið útskúfað af vafasömum ástæðum hefur tekist að snúa aftur og gengið vel að selja áskriftir og tónleikamiða. Börnum hefur verið bjargað úr tálmun og aðskilnaði. Sveitarfélögin hafa mætt gagnrýni fyrir að hleypa tittlingum að nöktum stúlkum. Í haust gengu margar veirur yfir samfélagið og það hélt áfram að ganga eins og klukka. Strengjabrúðustríðið sem átti að vinnast í sumar er núna orðið langdregið og leiðigjarnt og hætt að skipta okkur máli.

Sjálfstæðir blaðamenn hafa potað í kýlin og í mörgum tilvikum tekist að hleypa greftrinum út og ofan í ruslið. Í öðrum tilvikum er sú vinna á fullu og gengur víða vel.

Hátindi geðveikinnar er kannski náð. Árið 2023 var kannski árið þegar pendúllinn fór að sveiflast í hina áttina, jafnvel mjög hratt. Ester í Bónus er hugsanlega orðin að persónugerving þessa viðsnúnings þegar hún rak frá sér kynjafræðing og hrakti ofan í holu.

Ég leyfi mér vona, og ætla að leggja mitt af mörkum á árinu 2024 til að liðsinna þessari stefnubreytingu pendúlsins. Lesendur þessarar síðu vita þá að hverju þeir ganga, í hið minnsta.

Skildu eftir skilaboð