Elon Musk líkir loftslagsmálinu við kommúnismann

Gústaf SkúlasonErlent, LoftslagsmálLeave a Comment

Þeir sem segjast berjast gegn „loftslagsbreytingum“ eru í raun að leita að kommúnísku samfélagi. Þetta samkvæmt færslu Elon Musks á X. Undanfarin ár hafa sífellt fleiri sett fram þá skoðun, að það sem raunverulega leynist á bak við hin svokölluðu loftslagsmál sé einfaldlega kommúnisminn. „Loftslagið“ er bara afsökun til að endurmóta samfélagið.

Nú gerir Elon Musk sams konar samanburð.

Á X-inu hefur Musk birt færslu sem sýnir konu sem í fyrstu segist vilja berjast gegn loftslagsbreytingum, en viðurkennir að lokum að það sem hún vilji í raun og veru sé kommúnismi. Konan segir að lokum:

„Ég vil kommúnisma.“

Elon Musk hefur 181 milljón fylgjendur á X.

Einn notandi skrifar við færslu Musks:

„Svo mikill sársaukafullur sannleikur í stuttum skilaboðum.“

Annar sem skrifar athugasemdir er hneykslaður og veltir því fyrir sér hvað hafi komið fyrir Musk.

 

 

 

Skildu eftir skilaboð