Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 12.4.2022.
Heimurinn hefur gengið af göflunum - hatur á Rússum og öllu rússnesku er allsráðandi í fjölmiðlum. Íþróttamenn, tónlistarmenn, skákmenn og jafnvel kettir og hundar eru útilokaðir frá keppni séu þeir af rússneskum uppruna. Eignir Rússa og rússneska ríkisins eru frystar víða um heim og þeir jafnvel útilokaðir frá SWIFT bankagreiðslukerfinu.
En hvernig á ég að hata Pútín og Rússa þegar sömu fjölmiðlar sem nú segja hann óalandi og óferjandi hafa veitt mér ýmsar upplýsingar gegnum tíðina sem setja gerðir hans í röklegt samhengi?
Byrjum á Bill Clinton og útþenslustefnu hans á NATO. Var einhver þörf á að reyna að koma öllum ríkjum sem hefðu landamæri að Rússlandi þangað inn? Pútín kom í veg fyrir að Georgía gengi í NATO og allir máttu vita að hann samþykkti ekki heldur að Úkraína færi í bandalag sem væri stefnt gegn Rússum. Af hverju gaf NATO Úkraínumönnum vonir um það? Stjórnvöld sem eiga í stríði gegn hluta þegna sinna eru ekki gjaldgeng þar inn.
Fjölmiðlarnir, New York Times, Guardian og fleiri sögðu mér að Úkraína væri eitt af alspilltustu löndum heims, ólígarkar hefðu sölsað undir sig það sem þeir gátu og almenningur byggi við sult og seyru. Einnig sögðu þeir frá ný-nazískum hersveitum sem væru hluti stjórnarhersins og grimmdarverkum þeirra.
Huffington Post sagði frá því árið eftir Maidan uppreisnina að ástandið á munaðarleysingjahælum landsins væri skelfilegt, mikið um kynferðisofbeldi og börn hyrfu jafnvel þaðan og fyndust svo myrt. Amma barns með Downs heilkenni hafði fengið tilboð í barnið - það átti að selja úr því líffærin. Sumar sögur gleymast ekki.
Eftir stjórnarskiptin 2014 tóku Rússar yfir stjórn á Krímskaga átakalaust, enda höfðu þeir hersveitir þar, en Úkraínuher var sendur gegn íbúum Donbasshéraðs sem voru ósáttir við hin nýju stjórnvöld og stóð það stríð þar til nýverið. Talið er að yfir 14.000 manns hafi fallið og 2-3 milljónir lagt á flótta þaðan. Skrifað var undir samkomulag í Minsk um að héruðin í Donbass fengju sjálfsstjórn en samt lýsti stjórn Úkraínu því yfir 2019 að úkraínska skyldi ein vera opinbert mál í landinu. Augljóst var að ekki stóð til að virða Minsk samkomulagið.
Utanríkisráðherrar okkar hafa elt ESB í því að refsa Rússum fyrir að innlima Krímskaga sem var að 3/4 hlutum byggður Rússum og var aðeins talinn hluti af Úkraínu sakir hugdettu Krúsjoffs. Að þeirra mati áttu sömu örlög að bíða íbúa þar og íbúa Donbass - stríð og hörmungar. Illmennska eða heimska?
Eftir að innrás Rússa hófst þá bættust við fleiri upplýsingar. Á Ottawa Citizen mátti lesa að Kanadabúar og fleiri NATO þjóðir hefðu þjálfað sveitir Úkraínuhers og sent þeim vopn á sama tíma og hernaður gegn íbúum Donbass var enn í gangi. Victoria Nuland (sem var einn af skipuleggjendum Maidan) viðurkenndi tilvist lífefnarannsóknastofa í Úkraínu og gögn sýna að Obama kom að stofnun slíkra rannsóknastofa 2005. Pentagon virðist hafa eytt 200 milljónum USD til reksturs 46 rannsóknastofa í Úkraínu. Af hverju svo margar? Hvaða rannsóknir voru þar í gangi?
Fjölmiðlarnir sem áður fjölluðu opinskátt um ný-nazisma virðast hafa fengið fyrirmæli um að gera lítið úr honum nú. En af hverju var fæðingardagur Stepan Bandera, samverkamanns nazista, gerður að opinberum hátíðisdegi í Úkraínu 2018? Skiptir dauði 1.000.000 Pólverja, gyðinga, Rússa og annarra mannvera engu lengur?
Sökin er öll hjá Rússum, segja fjölmiðlarnir nú: það hafi aldrei verið háð stríð þar sem sé jafn augljóst hver sé í órétti. Til þess þurfa menn þó að horfa fram hjá 8 ára þjáningum fólksins í Donbass.
Er Zelensky bauð sig fram til forseta lofaði hann að koma á friði í landinu en hernaðurinn gegn Rússum hélt áfram. Hinar ný-nazísku Azovhersveitir höfðu aðsetur sitt í Mariupol (sem útskýrir af hverju borgin er nú í rúst) og herjuðu þaðan. Átti að koma á friði með því að útrýma Rússum (þeirra gyðingum) og koma á hrein-úkraínsku ríki?
Igor Konashenkov hjá varnarmálaráðuneyti Rússa hefur lagt fram skjöl, dagsett 22/1 í ár, sem eru sögð sýna að Úkraínuher hafi skipulagt innrás í Donbass héruðin með hersveitum er Bretar og Bandaríkjamenn hefðu þjálfað í Lvov til að leggja þau undir sig. Var það kannski alltaf markmið NATO?
Pútín sagði strax í upphafi innrásarinnar hvert markmiðið væri - að frelsa Austurhéruðin og af-nazistavæða Úkraínu. Því markmiði virðist nú náð og brotthvarf skriðdreka Rússa sem bundu úkraínskar hersveitir við að verja Kíev og fleiri borgir er hafið þegar þessi orð eru skrifuð. Að auki hefur innihald líftæknirannsóknastofanna verið fjarlægt og flutt heim til BNA.
Eru við örugglega í réttu liði?
6 Comments on “Erum við kannski í röngu liði – er stríðið í Úkraínu bein afleiðing af útþenslustefnu NATO?”
Aróður þjóðarmorðingjans í Kreml hefur greinilega fundið leið til fólks sem veit ekkert um stjórnarhætti í Rússlandi,þar sem fólki er kastað i svartholið fyrir skoðanir sínar, eða því er byrlað eitur, þyki það of ögrandi fyrir einræðiskvikindið í valdastóli. En frelsinu fylgir líka sú ábyrgð, aæ fara rétt með. Það er einfaldlega ekki öllum gefið.
Áróður vesturlanda hafa greinilega náð þér Sigðurður Guðjónsson.
Það þýðir ekki að áróður Rússa sé eitthvað minni, því við verðum að muna að í stríði er sannleikurinn vandfundinn.
The first casualty of war is truth …
Það sem þú lest í blöðunum er ekki sannleikur heldur áróður. Í vesturlenskum blöðum lestu vesturlenskann áróður, í rússneskum blöðum lestu rússneskan áróður.
Það er barist um skoðanir almennings í fjölmiðlum, í afþreyingarefni (bíómyndum, tölvuleikjum) og samfélagsmiðlum. Við sköpum ekki eigin skoðanir lengur, þær eru framleiddar handa okkur.
Þetta er eitthvað sem Noam Chomsky skrifaði um í „Manufacturing consent“ bráðmerkileg bók sem fjallar um það hvernig almenningur er heilaþveginn til að styðja ákveðnar skoðanir.
Við höfum nýlokið tveggja ára heilaþvotti um ágæti bóluefna … er einhver sem ekki tók eftir því?
Bros, báðir á réttri leið. Egilsstaðir, 13.04.2022 Jónas Gunnlaugsson
Væri ekki ráð að Sigurður Guðjónsson, Björn Bjarnason og fleiri rússahatarar sýndu viljann í verki og byðu sig fram í fremstu víglínu fyrir Azov-sveitirnar?
Hefur ekkert með Nato að gera, þessi lönd voru í Varsjárbandalaginu,
Rússar réðust inn í Ungverjaland og Tékkóslavakíu.
Þó svo að bæði löndin voru í Varsjárbandalaginu.
Hefur það gerst í Nato að eittbandalagsríki hefur ráðist á annað ríki????
Nei, en hvers vegna gerðist það í Varsjárbandalaginu???
Finnar segja, þú getur aldrei treist Rússum, þeir hava reisnlu af Rússum.
Ef höfundur Ingibjörg Gísladóttir telur að ísland sé í röngu liði þá var það alltaf blautur draumur vinstri manna á íslandi að vera „í liði“ með Rússum frekar en vestrinu. Ég efast um að það væri betra fyrir ísland, það er rétt hja Finnum og Svíum það er ekki hægt að treysta Rússum.