„Ég er kona,“ sagði karlinn

frettinPistlar1 Comment

Eftir Pál Vilhjálmsson:

Breski þingmaðurinn Jamie Wallis sagðist fyrir tveim vikum vera kona en hafði fram að því verið talinn karl. Margir atburðir gerast á skömmum tíma hjá Wallis. Samkvæmt BBC keyrði hann á ljósastaur og stakk af, honum var nauðgað (af karli) og beittur fjárkúgun. Ekki ein báran stök á þeim bænum.

Kathaleen Stock er femínisti sem óar við þeim fjölda karla sem gerast konur nú til dags. Stock kenndi heimspeki í breskum háskóla þegar henni varð það á að segja kyn ákvarðast af liffræði en ekki persónulegu vali. Í framhaldi var hún hrakin úr starfi. Sumt má ekki segja upphátt þótt það séu almenn sannindi.

Stock nefnir Jamie Wallis sem dæmi um það sem ekki er hægt, að skipta um kyn með yfirlýsingu. Í grein í Daily Mail fer Stock yfir vandkvæði kvenna af fjölgun karla sem þykjast konur.

Rými sem hingað til er ætlað konum s.s. kvennasalerni, búningsklefar kvenna og kvennaíþróttir eru ekki lengur þeirra heldur líka karla sem segjast konur. Tilefni greinar Stock er nýstofnuð kvennasamtök sem krefjast þess að stjórnmálamenn viðurkenni að líffræðilegur munur er á konum og körlum og að karlar geti ekki valsað inn í heim kvenna með því að segjast af gagnstæðu kyni.

Heilbrigðisráðherra Breta Sajid Javid gaf yfirlýsingu um að aðstaða kvenna á sjúkrahúsum væri ekki fyrir karla sem segðust konur heldur konur einar. Yfirmaður breskrar jafnréttis- og mannréttindanefndar vill líka verja rétt kvenna til kvennarýmis án karla sem halda sig konur.

Hávær minnihluti er sannfærður um að kyn sé persónulegt val en ekki líffræðileg staðreynd. Í Bretlandi hefur minnihlutanum orðið það ágengt að konur stofna samtök til að verjast körlum sem telja sig kvenpersónur án þess að hafa nokkuð til síns máls annað en persónulega afstöðu.

Í grunninn hefur sérhver rétt að skilgreina sjálfan sig á hvaða veg sem er. Vandi skapast þegar sérsinnaður einstaklingur krefst að aðrir breyti lífi sínu til samræmis. Frelsi eins verður ófrelsi annars. Þar liggur hundurinn grafinn.

One Comment on “„Ég er kona,“ sagði karlinn”

  1. Er geðbilunin að eignast eigið líf og eggið byrjað að éta hænuna?

    Það er auðvitað alltaf hægt að slökkva á útungunarvélinni. Þ.e.a.s. að loka Félags”vísinda”deildum háskóla.

Skildu eftir skilaboð