Eymd og auðnuleysi í Úkraínu – Glötunargatan

frettinArnar Sverrisson, Úkraínustríðið3 Comments

Eftir Arnar Sverrisson:

Fréttastofa RÚV er drottning lágkúrunnar í fréttamennsku, þegar umdeild umræðuefni eru annars vegar. Nú virðist hún endanlega vera orðin útibú frá áróðursráðuneyti Volodymyr og sameiginlegri fréttaveitu auðdrottna/stríðshauka Vesturlanda. Einlæg einfeldni rannsóknablaðamanna hennar er sárgrætileg og spaugileg í senn.

Því er nauðsynlegt að leita á önnur mið með álit og fréttir. Douglas Macgregor er einn þeirra, sem búa yfir alhliða þekkingu á málefninu. Hann hefur nýlega skrifað grein, „Stormsveipir yfir Úkraínu ráða niðurlögum Vesturlanda“ (The Gathering Storm in Ukraine Spells Doom for the West). Í greininni er einnig áhugavert viðtal að finna um efnið. 

Valdabröltið í Washington

Douglas fjallar af þekkingu um valdabröltið í Washington, herkænsku á vígvöllunum, ástandið í Bandaríkjunum og Evrópu, utanríkis- og öryggismál, svo og efnahagskreppuna, sem er í hraðri uppsiglingu.

Hann segir í hnotskurn: Stríð Úkraínu og Vesturlandanna er tapað hernaðarlega. Efnahagslegar og menningarlegar ógöngur í Evrópu eru eldfimar. Hann nefnir meðal annars þá holskeflu flóttamanna, sem stríð Bandaríkjamanna og Nató, hafa hrundið af stað, og Vesturlönd varla ráða við, hvorki efnahagslega né menningarlega.Bandarískt samfélag er einnig á heljarþröm.

Bandarísk yfirvöld hafa brugðist við þeirri kreppu, sem um langa hríð hefur bullað undir niðri, og nú sýður upp, með því að prenta fleiri dali. Það er eins og ævinlega uppskrift að meiri eymd.

Stríðið í Úkraínu rekið fyrir skattfé almennings

Stríðið í Úkraínu og raunar samfélagið allt, meira eða minna, er rekið fyrir skattfé almennings á Vesturlöndum – sérstaklega bandarískra skattgreiðenda. Murkað er lífið úr hundruðum þúsunda karlmanna á vígstöðvunum.

Samtímis eru afleiðingar hildarleiksins eins og bjúgverpill; hittir sendandann beint í hausinn. Og íbúar víða um Evrópu setja á sig kryppu við kreppunni, sérstaklega í Þýskalandi. Það virðist renna upp fyrir almúganum þar, að Nató var bókstaflega stofnað til þess, einum þræði, að halda þeim niðri.

Bandaríkjamenn hafa lengi óttast samvinnu þýsks iðnaðar og rússneskra orkusala. Það hefur nú tekist að eyðileggja þessa samvinnu, m.a. með hryðjuverkinu í Eystrasalti, framið af Norðmönnum og Bandaríkjamönnum, með óbeinu samþykki Íslendinga. Aulalegar skýringar stjórnvalda í Þýskalandi og Bandaríkjunum eru organdi ótrúverðugar.

Alþjóðaauðvaldið herjar á almenning

Alþjóðaauðvaldið og málaliðar þess í stjórnmálum herja einnig á almenning í stríðinu grængolandi, svo og veirustríðinu. Duglaus og varhugverð íslensk ríkisstjórn trítlar með og RÚV leikur hermarsinn.

Stríðsöskrin hljóma enn og jafnvel hærra en áður, frá vitfirrtum leiðtogum Vesturlanda, sem dæla fé inn á reikninga Volodymyr og vopnum á vígvellina. Á meðan skellihlær hergagnaiðnaðaraðallinn og núir saman höndum. Lófarnir verða sífellt loðnari. Skemmst er að minnast Kænugarðsfarar stríðssystranna, Katrínar og Þórdísar Kolbrúnar.

Vígavífin reka líka upp stríðsöskur, en láta ekki þar við sitja, heldur faðma stríðshetjuna Volodymyr. (Í minni sveit er það reyndar kallað kynferðisleg áreitni.) Þó Volodymyr yrði hvumsa við, var hann faðmaður í bak og fyrir. Það var dýrt faðmlag íslenskum skattgreiðendum. En það er náttúrulega réttur vígavífanna sem kúgaðra kvenna að skreppa út í heim og faðma karla, kjassa og kyssa í boði kjósenda.

Stríðssysturnar lofa hernaðaraðstoð

Stríðssysturnar lofa Úkraínumönnum hernaðaraðstoð frá Íslendingum. Pólverjar senda eldgamlar MIG herþotur, sem vafalaust verða skotnar niður í flugtaki eins og hernjósnaflygildi Bandaríkjamanna um daginn. Bretar eru einnig í þann mund að senda skriðdreka, sem eru búnir „rýrðum úranskotfærum“ (depleted uranium), sem auðvelda eyðingu bryndreka. Rússar hafa sent skilboð þess efnis, að slík vopn telji þeir „skítug,“ þ.e. handan hins sæmilega stríðs.

Áfram skal gengið götuna fram eftir glötunarveg.

Fleiri tilvisanir með greininni má finna hér.

3 Comments on “Eymd og auðnuleysi í Úkraínu – Glötunargatan”

  1. Arnar hvað er að af hverju tekur þú Pútin frekar en Zelenskí? Af hverju þetta hatur á Bandríkjunum?

  2. Góður pistill. Úkraína er rotin og spilltasta þjóð Evrópu og íslenskir ráðamenn taka þátt í spillingunni og morði á saklusu fólki.

  3. Arnar, mikið er nú gott að það sé einhver sem þorir að segja sannleikann um BNA. Það er hreint með ólíkindum hvað það eru margir Rússahatarar hér á þessu skeri, og skoðun þeirra er 100% bundin af andúð og hatri á Pútin og Rússlandi til að hægt sé að réttlæta og fylgja glæpum BNA og NATO. Þú mættir nefna líka DV og Vísi þegar þú ert að tala um lágkúru í fréttamennsku, skítadreifunin er mest á þeim miðlum.

    Ég hefði viljað sjá þá aðila í íslensku ríkisstjórnini sem hafa haft sig mest í frammi að ausa fé í og lofi á þessa stríðsglæpamenn verða dæmda fyrir landráð.

    Það þarf að stoppa þessa vitleysu og koma BNA út úr Evrópu, svo þurfa þjóðir Evrópu að skrifa undir öryggis og varnarsáttmála Evrópu. Það eiga engar utan að komandi þjóðir að koma nálægt þeim samningi.

    Ég hata EKKI fólkið í Bandaríkjunum, ég á fullt af vinum þar hef í gegnum tíðina líkað mjög vel við hin almenna borgara þar. Ég hef ekki sömu sögu að segja af ríkisstjórnum BNA sem hafa haft það að markmiði að taka yfir allann heiminn með kúgunum og vopnavaldi og ÞAÐ ÞARF AÐ STOPPA!

Skildu eftir skilaboð