Hverjir vilja svipta hinsegin fólk mannréttindum?

frettinHinsegin málefni, Tjáningarfrelsi3 Comments

Í norska dagblaðinu Nettavisen er að finna ritdeilur tveggja Norðmanna um hinsegin málefni. Annar þeirra er Dag Øistein Endsjø prófessor í trúarbragðafræðum. Hinn er Sverre Avnsk aðjúnkt og sérkennslufræðingur sem kominn er á eftirlaun. Endsjø skrifaði grein þar sem hann segir að ef ekki verði bannað að mismuna samkynhneigðum og transfólki þá verður það líka leyfilegt að mismuna gyðingum og múslimum, konum og fötluðum, eða hvað það nú kann að vera. Fyrirsögn á grein Endsjø er: Til ykkar sem gagnrýnið Pride: hverju eru þið eiginlega á móti? 

Avnsk svarar grein Endsjø sem ber fyrirsögnina: Nei, gagnrýni á Pride þýðir ekki að maður vilji svipta einhvern mannréttindum. Hann skrifar:

Það er mjög sjaldgæft að ég lesi fullyrðingar sem eru svo fullar af ranghugmyndum, strámönnum og rangtúlkunum eins og Dag Øistein Endsjø prófessor í trúarbragðafræði skrifar í Nettavisen.

Avnsk segir prófessorinn draga umræðuna um hinsegin málefnin niður á svo lágt plan að hún gerir allar merkingarbærar samræður ómögulegar og það gerir hann með því að eigna gagnrýnendum miðaldarlegar og ámælisverðar skoðanir.

Það er prófessor með hæsta starfsheiti sem hægt er að fá í landinu sem skrifar um hinsegin málefnin en lætur eins og hann skilji ekki gagnrýnina sem hefur komið fram. Hann heldur því fram að gagnrýnendur vilji afnema mannréttindi af þeim sem taka þátt í hinsegin viðburðum.

Avnsk spyr hvort nokkur hafi einhvern tímann lagt til að þátttakendur í hinsegin málefnum missi mannréttindi?

„Hvaða mannréttindi hafa þeir á móti,” spyr prófessorinn. Eins og það sé viðeigandi spurning.

„Er það samkomufrelsi sem þeir eru á móti - réttinum til að skipuleggja sig og tjá skoðanir sínar?”

„Er það málfrelsið sem þeir vilja takmarka?”

„Er það kannski rétturinn til einkalífs sem þeir vilja afnema?”

„Eða eru það mannréttindin sem hafna mismunun sem þau vilja burt?”

„Kannski mannréttindin til að öðlast betri heilsu sem þeir vilja fjarlægja?”

„Eða mannréttindi barna burt?”

Næst þegar einhvern stígur fram og fordæmir hinsegin viðburði vinsamlegast biðjið þá að vera nákvæmari með það hvaða mannréttindi fólksins þeir vilja fjarlægja.”

Avnsk heldur áfram og segir: Með því að spyrja svona tilgangslausra spurninga, eins og prófessorinn gerir, sem augljóslega hafa þann tilgang að eigna gagnrýnendum hinsegin málefna slíkar miðaldarlegar- og ámælisverðar skoðanir, fer prófessor Endsjø með umræðuna um hinsegin málefni á svo lágt plan að hún gerir allar vitrænar samræður ómögulegar.

Jafnvel þekktur hommi eins og fjölmiðlastjarnan Jan Thomas gagnrýndi gleðigönguna fyrir nokkrum árum og sagði að sér liði ekki vel þar sem hvers konar kynhneigð og búningar væru í forgrunni og fókusinn væri á kynlíf í ólíkum myndum en ekki ástina.

Sú staðreynd að prófessor Endsjø hafi í raun ekki áttað sig á því að gagnrýni af þessu tagi ýti undir viðhorf gegn hinsegin málefnum er nánast ótrúleg. Mig grunar að hann sé að þykjast ekki vita betur, en gefur sér að gagnrýnendur séu á móti mannréttindum.

Þeir sem standa fyrir hinsegin viðburðum segja markmiðið að berjast fyrir því að allir eigi rétt á að elska þann sem þeir vilja. Ég held í reynd að þeir séu afar fáir í Noregi sem séu móti þeim réttindum.

Það er allavega ekki um það sem gagnrýnin fjallar. Langt í frá.

Gagnrýnin á hinsegin málefni snýst ekki um réttinn til að elska þann sem maður vill, heldur að málaflokkurinn ýti undir kynjahugmyndafræði sem er mjög umdeild, vægt til orða tekið. Þeir sem eru á því að líffræðilegu kynin séu tvö, karl og kona, hafa örugglega sín mannréttindin líka, ekki satt?

Það hlýtur að vera leyfilegt, í nafni málfrelsis, að gagnrýna hinsegin málefnin þar sem þau draga fram sýn á kyn sem ekki ríkir sátt um. Það eru líka mannréttindi.

Það hlýtur líka að vera fullkomlega löglegt, í nafni málfrelsis, að bregðast neikvætt við, þegar fólk klætt í búninga úr leðri og lakki gengur um og teymir hvort annað eins og hunda í taumi og þátttakendur gleðigöngunnar tala í fjölmiðlum um mismunandi kynhneigð, þar sem t.d. karlmenn segjast hafa þá kynhneigð þar sem þeir njóta þess að láta sparka í punginn á sér.

Eru það virkilega mannréttindi að geta sagt í fjölmiðlum að þú viljir láta berja þig, hýða þig, gera lítið úr þér og sparka í þig?

Er leyfilegt að telja slíka áherslu á kynhneigð í öllum afbrigðum óhóflega, þar sem sumum kann að finnst það truflandi og að maður vilji frekar að svona lagað eigi heima í einkaklúbbum? Verður fyrir alla muni að sýna „kynhneigðina“ úti á götu?

Við erum mörg sem viljum tjá okkur í fjölmiðlum en flest upplifum við að okkur sé hafnað og neitað um birtingu. Er það ekki brot á málfrelsi okkar?

Hinsegin samfélagið skipar stóran sess í fjölmiðlum og virðast hafa alla fjölmiðla með sér til að ala á þessari hugmyndafræði í heilan mánuð, í leikskólum, skólum og á götum úti. Næstum hver einasta stofnun í Noregi mun nú prýða sig með sínum eigin hinsegin viðburðum.

Greinin birtist fyrst á bloggsíðu Helgu Sverrisdóttur og er birt hér með leyfi og breytingum á texta.

3 Comments on “Hverjir vilja svipta hinsegin fólk mannréttindum?”

  1. Það á ekki að fagna úrkynjun mannkynsins. Sorgleg þróun.

  2. Hvernig gildum er verið að koma að hjá þessari litlu stelpu, það sé eðlilegt að stunda afrbrigðilegt kynlíf?

  3. Hún heldur á regnbogafána og klappar BDSM karlmanni, þetta þykir víst norm í dag!

Skildu eftir skilaboð