Orkuskiptin og allt það

frettinGeir Ágústsson, OrkumálLeave a Comment

Geir Ágústsson skrifar:

Ég verð að viðurkenna að eftir að hafa lesið bókina Fossil Future: Why Global Human Flourishing Requires More Oil, Coal, and Natural Gas—Not Less eftir Alex Epstein þá hefur orðið ennþá erfiðara fyrir mig en áður að lesa fréttir af meintum orkuskiptum sem móteitri við svokallaðri loftslagsvá. Bókin er góð og vel rökstudd og jafnvel hörðustu andstæðingar hagkvæms jarðefnaeldsneytis gætu lært mikið af henni, þó ekki nema til að kynna sér almennilega þær áskoranir sem mannkynið stendur frammi fyrir í að afla sér orku og hvað er mikið í húfi að það takist.

Ísland er orkueyja

Á eyjunni eru fallvötn og jarðhiti sem veita aðgang að stöðugri og hagkvæmri orku - ekki bara sveiflukenndu rafmagni heldur stöðugu streymi af bæði hita og rafmagni. Svolítil viðbót í formi jarðefnaeldsneytis tryggir svo samgöngur, siglingar og varaafl. Á Íslandi er hægt að reka álverksmiðjur sem losa töluvert minna af koltvísýringi en þær sem eru staðsettar víða annars staðar, og álið svo nýtt til að skipta út stáli í bílum og flugvélum, létta þessi tæki og minnka eldsneytisnotkun þeirra. Koltvísýringurinn stuðlar svo að örvun á plöntuvexti og gerir Íslendingum kleift að rækta korn og byggja upp skóglendi. Þetta er dásamleg blanda.

En það vantar meiri orku. Stöðuga og hagkvæma orku. Orku eins og þá sem vatnsfallsvirkjanir framleiða. En þær má helst ekki reisa. Þær breyta jú ásýnd landslagsins, raska fiskigöngum og rýra vatnabúskap, ekki satt?

Fugladauði er algengur við vindmyllur

Hver er þá lausnin?

Að taka spjaldtölvurnar og rafmagnsbílana af fólki? Að hækka rafmagnsverð á ákveðnum tímum sólarhrings, þá helst þegar barnafjölskyldur þurfa að sjóða vatn til að elda mat (að hætti Dana)?

Nei, reisa vindmyllur!

Þá er allt í lagi að breyta ásýnd landslagsins. Fuglar gætu orðið fyrir röskun (eins og þeirri að missa höfuð eða væng) en gleymum því. Rafmagn má allt í einu fara úr því að vera stöðugt, ódýrt og áreiðanlegt í óstöðugt, dýrt og óáreiðanlegt og krefjast varaafls í formi rafstöðva og annars konar virkjana - tvöfalt kerfi í stað einfalds.

Vindmyllur eru örugglega sniðugar í ákveðnum tilvikum, t.d. þegar valkostir eru fáir, plássið mikið, vasarnir djúpir og neytendur ríkir. En þær eru sjón- og hljóðmengun, raska náttúrunni, óstöðug uppspretta orku, kosta mikið í viðhaldi og mun síðri valkostur en margt annað sem er raunverulega í boði á Íslandi.

Bara svo því sé haldið til haga.

Skildu eftir skilaboð