Samtökin´78 standa fyrir nýyrðasamkeppni í þriðja sinn, Hýryrði 2023. Samtökin leita nú meðal annars að kynhlutlausum orðum yfir ömmu og afa (foreldri foreldris) sem hægt er að nota fyrir kynsegin fólk. Eins leita samtökin að skammstöfun fyrir orðið kynsegin. Þetta kemur fram á síðu samtakanna.
Í fyrri samkeppnum urðu meðal annars til orðin eikynhneigð, dulkynja, flæðigerva, kvár og stálp.
Samtökin lýsa þar að auki eftir ábendingarfornafni í eintölu sem myndi virka sem kynhlutlaus útgáfa af karl- og kvenkynsorðunum sá og sú sem hægt væri að nota bæði þegar talað er um kynsegin fólk eða þegar kyn manneskju er ekki þekkt.
Þrjú hýryrðanna sem samtökin leita að eru þýðing á ensku orðunum Tvö þeirra eru femme og masc og lýsa bæði kyntjáningu einstaklinga og líka þeim einstaklingum sem fólk laðast að. Þá auglýsa samtökin einnig eftir þýðingu á orðinu allosexual, sem notað er um fólk sem upplifir kynferðislega aðlöðun og er gagnstætt orðinu eikynhneigð.
2 Comments on “Samtökin´78 auglýsa eftir kynhlutlausum orðum yfir ömmu og afa”
Það eru bara til tvö kyn, karl og kona, allt annað er afbrigðilegt. Úrkynjun mannkynsins er ekki til heilla.
Þau ættu að eyða tímanum sínum í að týna plast úr fjörunni frekar en að bulla í saklausum börnum!