Svissneski blaðamaðurinn Robin Rehmann afhjúpaður í satanísku hneyksli

frettinErlent, Kla.TvLeave a Comment

Kla.tv þýddi:

Við upphaf þessa árs 2023, sendi svissneska sjónvarpsstöðin SRF út sjötta hluta þáttaraðar sem ber yfirskriftina: ‚Satanic panic'. Í henni véfengir SRF blaðamaðurinn Robin Rehmann að til sé satanískur sértrúarsöfnuður sem stundi trúarleg barnaníð.
Robin Rehmann: „Ekkert svona er til!" „algjört bull!"

Samkvæmt Rehmann eru öll fórnarlömb, vitni, lögreglumenn og meðferðaraðilar sogaðir inn í „samsæriskenningu" eða „talaðir inn á hana" af meðferðaraðilum. Í þessum þætti skoðar Kla.TV bakgrunn ‚Satanic Panic' blaðamannsins Robins Rehmann, hverjum hann er tengdur og hvaða markmiða hann sækist eftir fyrir hönd SRF.

Kla.TV barst umfangsmikið myndefni þar sem Robin Rehmann, blaðamaður SRF, sýnir sig til dæmis sem farðaða djöfulsveru á Facebook-rás sinni. Með hljómsveit sinni „Krank" (=sjúkur) syngur hann öskrandi háum rómi og að hluta til ataður blóði um ofbeldi og klámfengið efni.

Robin Rehmann „syngur": „Voru alltaf fórnarlömb, skiljum gerendur vel! - með bros á vör þegar sprengjan springur!!"

Baphomet tákn

Rehmann sýnir sig gjarnan með Baphomet tákni, tákni fyrst og fremst notuðu af Satansdýrkendum eða meðlimum satanískra sértrúarhópa. Hann rekur tunguna út á milli útbreiddra fingra á myndum og situr meðal annars fyrir með metra langan getnaðarlim. Vekur það traust á blaðamennsku ‚SRF' þegar blaðamaður þess kemur fram á svo hneykslanlegan hátt? Og hvernig ætti maður að túlka þá staðreynd að Robin Rehmann klæðist stuttermabol með dauðagrímu í SRF dagskrá sinni um efnið „Satanic Panic"? Í ljósi þessa, hversu trúverðug er áköf afneitun hans á satanískum sértrúarsöfnuði sem iðkar ritúal misnotkun?

Hver er SRF blaðamaður Robin Rehmann?

Eftir að Kla.TV sendi frá sér um 27 fórnarlömb og 27 vitni að satanísku trúarofbeldi fékk Kla.TV svar við þessari spurningu. Hajar, enn eitt fórnarlamb trúarofbeldis, hafði samband við Kla.TV. Hajar hefur þegar veitt frjálsum fjölmiðlum viðtöl um alla þá hryllilegu satanísku helgisiði  sem hún þurfti að upplifa frá barnsaldri. Hún sýndi mikið hugrekki og birti andlit sitt og nafn. Í kjölfarið tók blaðamaður frá stórum fjölmiðli í Norður-Þýskalandi upp viðamikið viðtal við hana.

Hajar: „Reyndar þurfti ég að keyra til Berlínar í viðtalið. Það var eiginlega tilbúið til útsendingar. Áhorfendur og áskrifendur þessarar stöðvar, þessarar virkilega stóru stöðvar, fengu líka að spyrja spurninga og loksins fékk ég að tala um æsku mína og það sem kom fyrir mig. Þá var kveikt á Robin Rehmann, líka undir nafni. Fjölmiðillinn fullvissaði mig að þetta væri í raun mjög óvenjulegt, líka ásakanirnar sem hann hafði í þessu bréfi. Síðan var mér sagt að það væri of áhættusamt að birta viðtalið mitt, að þau tryðu mér samt auðvitað enn. Því miður var mér hafnað og viðtalið var ekki sýnt eftir allt saman. Ég held að það hafi aðeins einu sinni komið fyrir þá, og það einmitt þá um þetta efni, sem er í raun mjög mikilvægt. Mér fannst það bara mjög slæmt. Eiginlega þekkti ég hann alls ekki, Robin sumsé."

Komið í veg fyrir birtingu viðtala

Bíðið hæg, Robin Rehmann, það er þó þessi, að því virðist, ómerkilegi blaðamaður frá svissneska sjónvarpinu! Hvað er hann að gera í Norður-Þýskalandi og hvernig stendur á því að honum tekst að stoppa þetta viðtal með kröfu sinni? Er hann kannski ekki eins léttvægur og hann lítur úr fyrir? Hvernig stendur á því að hann hefur svona mikil áhrif, sérstaklega í ljósi þess að samkvæmt opinbera LinkedIn prófílnum hans getur Rehmann ekki einu sinni sýnt fram á almennilega menntun til blaðamanns?
Í kjölfarið var meir að segja ríkissaksóknari og lögregla send á auðmýkt fórnarlambið Hajar, væntanlega til að hræða hana og beita hana þrýstingi. Athyglisvert er að embætti ríkissaksóknara var sigað af þýska blaðamanninum Bernd Harder, sem við munum fjalla um eftir augnablik. Hajar varð fyrir samskonar reynslu, raunar í annað sinn frá annarri ríkisrekinni útvarpsstöð. Eftir að framkvæmdastjórnin hafði þegar gefið „í lagi" við framleiðslu heimildarmyndar um hryllilega sögu hennar, greip yfirmaður yfirmannsins skyndilega inn í og kom í veg fyrir útsendingu hennar. Nákvæmlega það sama gerðist hjá Anneke Lucas, belgísku fórnarlambi ritúal-ofbeldis og hjá mörgum öðrum fórnarlömbum misnotkunar.

Satanískur æðstiprestur á vinalista Rehmanns

Aftur að SRF blaðamanninum Robin Rehmann: Hversu trúverðug virðist heiftarleg afneitun hans á tilvist satanísks sértrúarsafnaðar sem iðkar ritúal misnotkun? Á opinberum vinalista Rehmanns á Facebook er satanískur æðstiprestur (!). Sá er skráður sem æðsti prestur á opinberri vefsíðu þessa Satanistafélags.
Á netinu sýnir hann aldrei andlit sitt og felur sína sönnu persónu á bak við dulnefni.

Þessi Facebook-vinur Rehmanns notar táknrænt dulnefni: Francis Dolarhyde, nafn miskunnarlauss raðmorðingja. Hann er persóna úr kvikmynd sem drepur fórnarlömb sín á hrottalegan hátt á næturnar með því að skera þau á háls, læsir beittum tönnum sínum í þau, kæfir þau til dauða og gera aðra hluti sem við viljum ekki einu sinni nefna hér. Kla.TV er með myndir sem sýna þennan sataníska æðstaprest Dolarhyde formlega stilla sér upp með truflandi satansgrímur og djöfullegar vígtennur. Á einni af þessum hryllilegu myndum, undir stórri yfirskrift „Our God Reigns" (á ísl. Guð okkar ríkir) situr hann sem hyrndur djöfull milli tveggja grímuklæddra satanískra persóna með barnsdúkkur í höndunum. Rétt við hlið hægri dúkkunnar er á stuttermabol letrið ‚black blood' (á ísl. svart blóð). Á YouTube rás þessa sataníska samfélags er myndband sem ber yfirskriftina ‚Adrenochrome kjallari'. Hvað er Adrenochrome? Að sögn vitna er blóð pyntaðra barna drukkið sem vímuefni, auðgað adrenókrómi frá kvölunum. Myndbandið ‚Adrenochrome kjallari' sýnir neðanjarðar göng sem leiða að drungalegum kjallara lýstum kertum - ásamt ógnvekjandi tónlist. Krossar eru brenndir. Í færslum satanista félagsins er Jesús fordæmdur sem stríðsáróðursinni og hvatamaður fjöldamorða.

Þessi sataníski æðstiprestur, Francis Dolarhyde, er vel tengdur og í vinahópi hans er meðal annars þýskur aðgerðarsinni sem hefur haldið fyrirlestra í mörg ár þar sem hún afneitar tilvist satanískra helgisiða-misnotkunar. Hún er afbrotasálfræðingurinn Lydia Benecke. Í einum fundi sem þau héldu kemur Francis Dolarhyde fram sem „sérfræðingur" - alltaf grímuklæddur. Afbrotasálfræðingurinn Benecke er framherji á þessum vettvangi og er ákaft á því að satanísk helgisiða-misnotkun sé samsæriskenning og satanismi sé bara „skaðlaus lífsspeki". Meðal útgefins efnis hennar eru bækur eins og: „Sadists: Deadly Love - Stories from Real Life (ísl: Sadistar, banvæn ást – raunsannar sögur) og „Vampires Among Us!" (ísl: Vampýrur meðal okkar). Í auglýsingu um bókina lofar Benecke lesandanum því að alvöru vampírur hafi líka fengið að tjá sig... Og einmitt hún er líka á vinalista SRF blaðamannsins Robin Rehmann og lætur sig auðvitað ekki vanta sem „sérfræðing" í SRF þáttum hans „Satanic Panic". Í viðtali sínu ber hún ögrandi hálsmen með tákni hrafnshauskúpunnar sem gegnir aðalhlutverki í göldrum og vúdú. Í þessu samhengi er rétt að minnast þess að lítið krosshálsmen sjónvarpsmanns var bannað hjá SRF á þeim forsendum að stöðin teldi „trúartákn" ekki við hæfi.

Mannát mikilvægur hluti af satanisma

Afbrotasálfræðingurinn Lydia Benecke stillir sér upp opinberlega við hlið blaðamannsins Bernd Harder fyrir framan mynd sem sýnir nakta konu vera sundur skorna. Sem lítur út eins og mannætu-kynsvall. Mannát er mikilvægur hluti af satanisma, hundruð vitna og fórnarlömb misnotkunar lýsa á trúverðuglegan hátt mannátshelgisiðum. Hvers vegna situr þetta fólk sem afneitar pyntingum og drápum satanískra helgisiða fyrir framan myndir sem sýna afbrigðilega iðkun eins og mannát?

Aftur að vafasömum tengiliðum Rehmanns. Í þáttaröðinni ‚Satanic Panic' tók hann viðtal við „vitni" sem fullyrti í SRF dagskránni að geðlæknir hans hefði ítrekað reynt að sannfæra hann um að hann væri fórnarlamb misnotkunar djöfladýrkenda. Þetta „vitni" heldur þessu fram í þættinum - án nokkurra sannana! En einmitt þetta vitni skrifaði bók sem ber titilinn „Orðabók Belsebúbbs" . ‚Belsebúbb' er annað yfir „djöful". Hversu trúverðugt er slíkt vitni?

Svissneska sjónvarpið þaggar niður í mikilvægum vitnum

Á meðan hið svissneska sjónvarp sem er fjármagnað með þvingunar-útvarpsgjöldum, gerir hlægileg hróp hundraða fórnarlamba eftir hjálp og þaggar niður í mikilvægum vitnum, ber þetta sama SRF sjónvarp út róg um Ivo Sasek, stofnanda Kla.TV + OCG; Andstyggilegan róg. Það var líka SRF sem startaði alhliða ákæru gegn honum fyrir mörgum árum!

Sama mynstur má sjá um allan heim: einlægar sannleikshreyfingar eru misrétti beittar og gert lítið úr er iðkunum satanísks sértrúarsöfnuðs, skjalfestum þúsundfalt.

Hjálpaðu til við að fletta ofan af myrkum flækjum hefðbundinna fjölmiðla okkar og gefið fórnarlömbunum rödd! Horfðu svo á heimildarmyndina „27 fórnarlömb og 27 vitni blóðsértrúarhópsins" og deildu henni með vinum þínum og kunningjum. Því að almennir fjölmiðlar gera það ekki. Þeir hylja, leyna, gera lítið úr og láta fórnarlömbin líta hlægilega út. Við skuldum fórnarlömbunum og mannlegri reisn, að sannleikurinn komi í ljós og þessum glæpum verði refsað.

Skildu eftir skilaboð