Afrískur tónlistarmaður flutti til Íslands fyrir ástina

frettinInnlent, TónlistLeave a Comment

Emmanuel er nígerískur söngvari með Íslenskan ríkisborgararétt og er lagasmiður undir listamannsnafninu NonyKingz. Emmanuel hefur verið búsettur á Íslandi síðastliðin 7 ár. Árið 2014 flytur hann til Filippseyja þar sem hann fór í viðskipta nám og aðeins ári seinna rakst hann á konu að nafni Amanda Eir sem er fyrsti Íslendingurinn sem að hann hittir á sinni ævi.

Emmanuel og Amanda verða ástfanginn og þá var ekki aftur snúið fyrir hann og tekur hann þá ákvörðun um að flytja með henni heim til Íslands.

Emmanuel og fjölskyldan

‘’Ég elska að búa á Íslandi, það er allt svo rólegt hérna og öruggt, það er stundum svolítið kalt fyrir minn smekk en þrátt fyrir það er ég þakklátur fyrir að vera hér með fallegu fjölskyldunni minni sem við konan höfum skapað’’ - Emmanuel

Emmanuel kemur ekki tómhentur til landsins heldur færir hann með sér meðal annars menningu sína af afrískri tónlist í mörgum afrískum tónlistarstílum eins og Afro-pop, Afro-dancehall og Afro-house. Það má segja að hann sé einstakur tónlistarmaður innan íslenskrar menningar.

,,Ég elska að vera listamaður, ég hef mikla ástríðu fyrir því sem ég geri. Fyrir mér er tónlist eins og köllun sem ég verð að svara.’’ - NonyKingz.

NonyKingz segir að búa og framleiða tónlist á Íslandi geti verið bæði krefjandi en einnig hvetjandi, þar sem von hans og markmið er að tengjast fólki hér á landi og um allan heim í gegnum tónlistina og koma fjölbreytileika inn í tónlistarlífið.

‘’Það er ekki hægt að bera saman Afríska tónlistarmenningu og Íslenska tónlistarmenningu. Afrísk tónlistarmenning er svo stór og við eigum svo mikið af heimsþekktu tónlistarfólki sem að hafa unnið að lögum með Beyonce, Ed sheeran o.fr.  Ísland á að engu síður frábært tónlistarfólk en tónlistarmenningin hér er mun minni en því sem ég er vanur. það getur verið erfitt að fá Íslendinga til að opna hurðina fyrir samstörfum við Afrískan tónlistarmann eins og mig, en ég er rólega að kynnast rétta fólkinu og það er allt á réttri leið’’ - Emmanuel

Platan ASTRO CHOCO

Emmanuel gaf út EP að nafni ‘’ASTRO CHOCO’’ nú á dögunum sem fjallar um að eiga góðar stundir og líða elskaður því sú tilfinning kallar fram góðar tilfinningar og hægt er að hlusta hér og einnig er hægt að horfa á visual fyrir ‘’Chocolate Boy’’ hér.

‘’Mín von er að fá Íslendinga til að hleypa Afrískri tónlist meira í hjörtun sín’’ - Emmanuel

Þú getur fylgst með Nonykingz á samfélagsmiðlum hans:
Instagram
Facebook
Youtube

Skildu eftir skilaboð