Beinagrindur í skápum fjölmiðla

frettinInnlent, Páll Vilhjálmsson, PistlarLeave a Comment

Páll Vilhjálmsson skrifar:

Blaðamennirnir líta á það sem persónulega árás á sig ef maður skrifar um þetta mál. Tilfallandi bloggari fékk þetta svar frá gamalreyndum blaðamanni snemma í vor er byrlunar- og símastuldsmálið var rætt á tveggja manna tali.

Í byrlunar- og símastuldsmálinu eru fimm blaðamenn sakborningar í yfirstandandi lögreglurannsókn. Páli skipstjóra Steingrímssyni var byrlað og síma hans stolið. Alvarleg afbrot en fátt að frétta.

Í fyrradag sagði tilfallandi frá þekktum blaðamanni sem stakk undan skatti. Í gær var sett meira kjöt á beinin. Blaðamaðurinn fékk sérmeðferð hjá skattinum þrátt fyrir undanskot upp á tugi milljóna króna.

Allar ritstjórnir landsins vita hver blaðamaðurinn er en enginn þýfgar hann um vantöldu leigutekjurnar frá Airbnb og hvers vegna hann slapp svona billega, fékk að endurgreiða í gegnum einkahlutafélag með 25 prósent álagi. Aðrir i sömu sporum fengu á sig opinbera ákæru. Réttvísi sem hyglar fréttamanni á kostnað almannahags vekur spurningar um jafnræði fyrir lögum. En það er ekkert að frétta.

Blaðamenn vilja ekki styggja vini og kunningja í stéttinni, síst af öllu þá sem eiga eitthvað undir sér og hafa bein og óbein völd yfir starfsframa einstaklinga í fámennri starfsstétt. Blaðamaðurinn leikur lausum hala og fer með hlut af dagskrárvaldi fjölmiðla eins og fínn pappír. Sem hann er ekki.

Illa er komið fyrir starfsstétt þar sem forræði mála er í höndum óvandaðra. Í þokkabót er þrotaforystan drekkhlaðin verðlaunum fyrir ill verk og samviskulaus.

Réttmæt spurning frá tilfallandi lesendum er hvers vegna bloggari gengur ekki fram fyrir skjöldu, birtir nafn blaðamannsins og upplýsingarnar til grundvallar umfjölluninni?

Ástæðan er eftirfarandi.

Tilfallandi fékk upplýsingar um afbrot þekkta blaðamannsins frá heimildamanni. Ef tilfallandi útskýrir hvernig hann fékk upplýsingarnar, eða varpar frekari ljósi á eðli þeirra, brýtur hann trúnað.

En má ekki afhjúpa nafn þekkta blaðamannsins?

Því er til að svara að fréttamenn RSK-miðla hafa í þrígang stefnt tilfallandi bloggara. Líkur eru töluverðar að bloggara yrði stefnt ef hann upplýsir nafn loddarans er útdeilir sekt og sýknu daginn út og inn en er sjálfur brotamaður á bakvið tjöldin. Fyrir rétti stæði tilfallandi frammi fyrir tveim slæmum kostum. Að brjóta trúnað gagnvart heimildamanni eða leggja ekki fram þau gögn sem staðfesta frásögnina og fá dóm fyrir meiðyrði.

Hvorugur kosturinn er góður. Nafn þekkta blaðamannsins verður að sinni ekki opinberað í tilfallandi athugasemd.

Á hinn bóginn er þess að geta að í haust eru líkur á að mál blaðamannsins verði upplýst. Þangað til hringlar í þekktu beinagrindinni í skáp fjölmiðlanna, - ásamt beinagrindunum fimm í byrlunar- og símastuldsmálinu.

Skildu eftir skilaboð