Tony Bennett er látinn

frettinErlent, TónlistLeave a Comment

Bandaríkski stórsöngv­ar­inn Tony Benn­ett er lát­inn 96 ára að aldri. Benn­ett lést á heim­ili sínu í New York eft­ir erfiða bar­áttu við Alzheimer-sjúk­dóm­inn.

Bennett greindist með Alzheimer-sjúk­dóm­inn árið 2016, en hélt áfram að framleiða og taka upp tónlist til ársins 2021.

Jafnaldri hans, Frank Sinatra, kallaði hann vinsælasta söngvara í heimi. Upptökur hans voru flestar gerðar fyrir Columbia Records, sem samdi við hann árið 1950. Tónlist Bennett einkenndist af gríðarlegri elju, hlýju, raddlegum skýrleika og hreinskilni. Benn­ett vann til 20 Grammy-verðlauna, tvennra Emmy-verðlauna og hefur selt yfir 50 millj­ón plöt­ur á ferli sínum.

Söngvarinn hélt tónleika í Eld­borg­ar­sal Hörpu árið 2012 sem var hluti af hljóm­leika­ferð hans um Evr­ópu, og var Ísland síðasti viðkomu­staður­inn.

Á meðal þekkt­ustu laga hans eru I Left My Heart In San Francisco, The Way You Look Tonig­ht og For Once In My Life.

Benn­ett var fædd­ur 3. ág­úst árið 1926 í Astoriu í New York-borg. Söngv­ar­inn læt­ur eft­ir sig eig­in­konu og fjög­ur börn.

Skildu eftir skilaboð