Ákærður fyrir skoðun á kosningaúrslitum

frettinErlent, Hallur Hallsson, Kosningar2 Comments

Hallur Hallsson skrifar:

Nú hefur 45. forseti Bandaríkjanna verið ákærður fyrir þá skoðun að kosningasvindl hafi verið haft í frammi í forsetakosningunum í nóvember 2020. Með því hafi Donald Trump haft áhrif á hornstein lýðræðis; Bedrock of Power til að hanga á völdum. Ef sekur bíður Trump allt að 20 ára fangelsi en hann er 76 ára. Hann er sakaður  um að hafa svikið; defrauded Bandaríkin með því að viðra rangar skoðanir og þannig ljúga að bandarísku þjóðinni. Trump hafi þrýst á embættismenn – þar á meðal Mike Pence varaforseta – að fresta að lýsa úrslitum.

Markmið Joe Biden 46. forseta er að koma í veg fyrir forsetaframboð Donalds Trump 2024. Trump fékk 75 milljónir atkvæða 2020, 12 milljónum fleiri en 2016. Trump er ekki ákærður um aðild að ofbeldi í þinghúsinu 6. janúar 2021. Hins vegar kennir Jack Smith sérstakur saksóknari Trump um ofbeldið. Smith er skipaður af dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. Smith þessi er duglegur með afbrigðum því þetta þriðja ákæran á hendur Trump. Áður höfðu FBI agentar ráðist undir alvæpni inn á heimili Trump í Flórída. Í praxís er það sitjandi forseti sem ákærir pólitískan andstæðing; seníll sídettandi Joe Biden sem ekki hélt marktækan kosningafund haustið 2020 en sagður hafði fengið fleiri atkvæði en nokkur forseti í sögu Bandaríkjanna.

Svona dreifist fagnaðarerindið

Íslenskir ríkramiðlar láta sitt ekki eftir liggja um hina einu réttu ríkisskoðun sem fer um öll Vesturlönd í boði Blackrock. Stöð 2 kallaði í settið fréttamanninn Samúel Karl Ólason sem þýðir Reuters sem endurómar Blackrock og Vanguard fjárfestingafélög hinna ofsaríku. Auðvitað hafði Samúel Karl ekkert frétt af því að Trump hafði þann 6. janúar 2021 hvatt til endurtalninga í Pensylvaníu, Michigan, Georgíu, Wisconsin og Nevada. Tölur höfðu breyst dramatískt í skjóli nætur eftir að talningu hafði verið hætt um klukkan þrjú á kosninganótt. Talningastöðum var lokað, eftirlitsfólki vísað á dyr, hurðar og gluggar birgðir, kjörkassar keyrðir á vettvang og Biden tók að fá öll greidd atkvæði. Þannig hvarf 800 þúsund atkvæða forskot Trump í Pensylvaníu í skjóli nætur svo dæmi sé tekið.

Þann 6. janúar 2021 voru svo dyr þinghússins opnaðar fyrir mótmælendum, ólíkt í Hruninu okkar þegar þingmenn Vg létu sér nægja að leiðbeina mótmælendum úr gluggum Alþingis. Frægar eru upptökur af FBI agent smala fólki inn um opnar dyr og lögreglumenn leiðbeina um ganga og sali þar á meðal hinn fræga indíána í loðfeldinum. Allt liggur þetta fyrir af opinberum upptökum sem Tucker Carlsson sýndi einn bandarískra fréttamanna og var svo rekinn af FoxNews. Heimildamyndin 2000múldýr; 2000mules afhjúpaði skipulagt kosningasvindl víða um Bandaríkin. Allt þetta hafa ríkra-miðlar þagað og þaggað að boði Blackrock og Vanguard í eigu prentaranna í Federal Reserve. Svona einfalt er gameplan þeirra. Jafnvel sósíalistar á litlu stöð 2 dreifa fagnaðarerindi hinna ofsaríku. Snoturt ekki satt?

2 Comments on “Ákærður fyrir skoðun á kosningaúrslitum”

  1. Vel skrifað en sem einn af mótmælendum i hruninu sem einna mest hafði sig frammi, var mer ekki leiðbeint af VG og skil ekki alveg hvað þu ert að fara með þvi Hallur minn

  2. Þú gætir Jón spurt hvaða lögreglumann sem er sem var starfandi á þessum tíma, að Álfheiður Ingadóttir þingmaður VG á þessum tíma var inni í alþingishúsinu og var í símasambandi við einhvern mótmælanda til að hvetja þá til dáða og hvar væri best að herða á mótmælum við húsið.

Skildu eftir skilaboð