Evrópuþingmaðurinn Christine Anderson: „þetta snýst um afnám frelsis, lýðræðis og réttarríkis“

frettinErlent, Evrópusambandið, WHOLeave a Comment

Kla.tv skrifar:

Þann 4. júlí 2023 þáði Kla.tv boð um þátttöku á blaðamannafundi á ESB-þinginu (Brussel). Við sögðum frá því í útsendingunni: „TRUST & FREEDOM – Evrópsk borgarahreyfing í startholunum!“. Í þessum þætti sendum við út í fullri lengd einkaviðtal við stjórnmálakonuna Christine Margarete Anderson (AFD), sem hefur verið kjörinn fulltrúi ESB-þingsins frá 2019.

Útdráttur úr ræðu Andersons í Brussel:

„Þið völduð þennan bardaga, Jæja, giskið núna? Þið fenguð hann. Við skulum berjast. Því þessir hugrökku borgarar, félagar mínir og ég, munum ekki þreytast á að berjast við ykkur sérhvert skref. (...) Því við erum milljónir, milljónir um allan heim. Trúðu mér, trúðu okkur, trúðu þessum sjö þingmönnum sem komu saman hér í dag. Trúðu milljónum manna um allan heim - við munum færa ykkur til falls. Og við gefumst ekki upp.

Christine Margarete Anderson, er þýsk stjórnmálakona úr flokknum‚ der Alternative für Deutschland eða „valkosturinn fyrir Þýskaland,“. Christine hefur setið á Evrópuþinginu frá 2019. Þessi þriggja barna móðir á sæti í menningar- og menntamálanefnd ásamt kvenréttinda- og jafnréttisnefnd. Hún á einnig sæti í rannsóknarnefnd um notkun gervigreindar á stafrænni öld. Eins er hún líka varamaður í nefndinni um innri markað og neytendavernd og sérnefndinni um hvaða lærdóm má draga af COVID-19 heimsfaraldrinum og tillögur til framtíðar.

Sem þingmaður styður hún evrópska borgaraframtakið TRUST & FREEDOM sem kynnt var almenningi í Brussel í júlíbyrjun. Hér á eftir kemur einkaviðtal sem Kla.tv tók við Anderson á blaðamannafundinum í Brussel.

Evrópuþingmaðurinn, Christina Anderson.

Kla.tv:

Kærar þakkir fyrir að gefa þér tíma til að gefa okkur stutt viðtal, frú Andersson. Fyrir fólkið sem er þekkir kannski hvorki alveg nafn þitt né persónu, getur þú kynnt þig. Hver ert þú, af hverju ertu hér í dag og við hvað hefur þú unnið undanfarið?

Segir Evrópuþingin mesta geðveikrahæli í heimi: vill loka „sjoppunni“

Christina Anderson: Já, ég er kjörinn þingmaður svo ég er fulltrúi þýsku þjóðarinnar með setur á ESB-þinginu. Og í grundvallaratriðum hefur þýska þjóðin beðið mig að gæta og standa fyrir hagsmunum sínum. Og ég hef verið að reyna að gera það núna í fjögur ár, sem er ekki svo auðvelt því þessi staður, ég kalla stærsta geðveikrahæli í heimi, mig hefði aldei órað fyrir þessu, maður hefur náttúrulega allt aðrar fyrirætlanir. Í meginatriðum snýst þetta um að færa lýðræðislega ákvarðanatöku sífellt fjær borgaranum en einnig til þess að skolast undan pólitískri ábyrgð. Borgarinn á eiginlega ekkert að vita um hver nákvæmlega ber ábyrgð á hverju. Auðvitað geturðu ekki lengur dregið stjórnmálamenn til ábyrgðar ef þú veist ekki hver ber ábyrgðina. Og í þessu húsi er þessu ýtt mjög markvisst áfram og því tel ég að það verði að afnema þessa sjoppu. Hugsanlega aftur til upphafsmyndar ESB, nefnilega Efnahagsbandalags Evrópu. Þetta var frábær hugmynd, en það er búið að afskræma hana óþekkjanlega. Og á meðan er þetta í rauninni bara sýndarlýðræði, lýðræðis-sjónhverfing til þess að troða alls kyns vitleysu upp á borgarana.

Kla.tv:

Þú sagðir nýlega að þú værir kjörinn fulltrúi fólksins sem er líka ástæða þess að við erum hér í dag: Evrópskt borgarahreyfing. Hvers væntir þú af deginum í dag - eða hvaða möguleika sérðu í þessari hreyfingu?

Vilja stofna evrópska borgarahreyfingu gegn alræðisöflum WHO og ESB

Christina Anderson: Þannig að við erum hér í dag því sjö virkilega hugrakkir Evrópuþingmenn , við erum ríkisborgarar frá sjö mismunandi ESB-ríkjum – komin saman í dag til að koma stofna evrópska borgarahreyfingu. Og það snýst í meginatriðum um að stöðva þennan ólýsanlega metnað hinna hnattrænu mann-óvina, eins og ég kalla þá. Nánar tiltekið snýst þetta um að koma í veg fyrir að WHO, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, geti tekið við stjórn aðildarríkjanna ef nýr heimsfaraldur kemur upp. Það er algjörlega óviðsættanlegt, þetta er algjörlega óviðunandi. Þetta er ekki kjörin stofnun en þeir ríkustu af ofurríku geta keypt sér inn í hann með framlögum. Og það er einfaldlega óásættanlegt, að minnsta kosti í lýðræðisríkjum, að Bill Gates ákveði til dæmis hvenær þýskir ríkisborgarar fái að yfirgefa húsið sitt, hvenær þeir þurfi að vera með grímu, í hvaða rútu þeir megi fara, hafi hann ennþá atvinnu eða þurfi að samþykkja mRNA-leitarflögu í handlegginn; því verður maður að koma að. Allt er þetta óviðunandi og þessu erum við að koma á stað hér í dag. Þessa evrópska borgarahreyfing miðar síðan að því að fá áheyrn hjá framkvæmdastjórn ESB. Þá kemur í ljós hvort þetta tekst. Að minnsta kosti ætti þó að reyna að gefa þessum milljónum ESB-borgara í aðildarríkjunum rödd, þeim sem telja að WHO eigi ekki einfaldlega að taka yfir ríkisvaldið.

Kla.tv:

Þú minntist á það áðan að núverandi stjórnmálaskipan hafi tilhneigingu til að fara í þessa átt, að minnsta kosti tekurðu eftir að venjulegt fólk hefur litla innsýn eða yfirsýn yfir það sem raunverulega er að gerast í ákvarðanaferlinu sjálfu. Svipað er upp á teningunum með slíkar stofnanir, samtök eins og WHO. Samantekt þín núna yfir síðustu ár, hvað kom frá WHO, hverju var komið á, hvað kom líka frá WHO. Hver er samantekt þín, bráðabirgðaniðurstaða þín, hvað er hægt að vita um þessa stofnun?

Snérist þetta aldrei um lýðheilsu hjá WHO

Christina Anderson: Jæja, fyrst og fremst verður að segjast að hjá WHO þá snérist þetta aldrei um lýðheilsu. Sérstaklega á síðustu þremur árum, þeir voru aldrei neinir öldubrjótar. Þetta snerist alltaf um að brjóta fólk. Það var þeirra markmið. Að þvinga fólk undir þumalskrúfu sérfræðinganna. Það voru engin sönnunargögn né málefnalegur grundvöllur fyrir ákvörðunum, til dæmis að bera grímur utandyra eða bera grímu þegar ég fer ein í skóginn eftir klukkan 9 á kvöldin. Allt þetta bull, það voru alls engar staðreyndir, engin vísindaleg þekking. Engu að síður voru þessar vitlausu og óskynsömu ráðstafanir engu að síður lagðar á fólk. Og sérhver sem þorði taka ekki þátt í þessu, við sáum hvað gerðist. Þeir voru stimplaðir, smánaðir, útilokaðir, hótað með atvinnumissi og þess háttar. Og það eitt og sér sýnir að þetta snerist allt um að knýja fram eina ákveðna frásögn. Við skulum tala um þetta hrikalega svokallaða bólusetningarátak. Hversu mikið þrýstingi var þar beitt með hótunum, til að fá sem flesta til að taka nálina í handlegginn. Maður gæti líka, og það var líklega markmiðið, það átti bara að útrýma samanburðarhópnum. Vegna þess að því fleiri sem ekki fengu þessa mRNA innsprautun, því fleiri vísbendingar gæti maður nú haft og það er nú að verða augljóst að hún ekki aðeins virkaði ekkert, heldur var hún þvert á móti í raun skaðleg. Og já, þeir vildu útrýma þessum samanburðarhópi eins og þeir gerðu einnig í leyfisrannsókninni. Að sögn af siðferðilegum ástæðum, að maður gæti ekki boðið þeim óbólusettu í samanburðarrannsókninni – sem átti að vera til samanburðar - að vera óbólusettir og geta hugsanlega smitast af þessari hræðilegu veiru. Sumsé, allt tóm þvæla. En við getum séð hvaða dagskrá er í raun verið að keyra hér áfram. Þetta snýst um, já ég verð að segja það alveg skýrt, þetta snýst um afnám frelsis, lýðræðis og réttarríkis. Til þess að setja upp alheims-eitthvað af hvaða tagi sem er - ég vil eiginlega ekki kalla það ríkisstjórn - heldur stofnun sem hefur í rauninni öll völd og niðurstaðan er sú að borgararnir hafa ekkert meira að segja. Um þetta snýst allt.

Kla.tv:

Á síðustu árum heimsfaraldursins hefur WHO gegnt miklu stærra hlutverki eða að minnsta kosti verið sýnilegri almenningi. Og hafi þarmeð öðlast stærri sess í samfélagsvitundinni. Á hinn bóginn er þetta samt svo abstrakt, ekki neitt alveg áþreifanlegt. Og ef þú segir núna að WHO hafi ekki beinlínis klínt á sig dýrð undanfarin ár þegar kemur að framkvæmdum sínum og því sé mikillar hættu að vænta í þessum yfirvofandi breytingum á heimsfaraldurssáttmálanum: Hvar sérð þú, við gætum sagt: auma punktinn eða þennan Akkilesarhæll, hvernig á að takast á við þetta mjög óhlutbundna fyrirbæri, stofnun eða hvernig á að afstýra þessu. Sérðu möguleika þar? Og ef svo er, hver væri hann?

Christina Anderson:

Jæja, þegar ég sagði áðan að WHO hafi ekki beinlínis klínt sig í dýrð síðustu þrjú árin, þá varst þú mjög, virkilega mjög vinsamleg. Ég myndi ganga aðeins lengra. Ekki bara útklíndu þeir sig ekki í dýrð heldur eru þeir glæpamenn. Punktur, basta. Og þetta verður maður að segja svona skýrt.

Kla.tv: Geturðu sagt okkur frá nokkrum nákvæmari dæmum?

Pfizer viðurkennir að sprautuefnin koma ekki í veg fyrir sýkingar og smit

Christina Anderson: Til dæmis þessa hrikalegu mRNA-sprautuherferð. Pfizer hafa sjálfir viðurkennt það hér í nefndinni. Þeir rannsökuð þetta efni ekki einu sinni til að sjá hvort það kæmi í veg fyrir sýkingar og smit. Það var alls ekki vitað. En í grundvallaratriðum byggðist þessi hrikalega sprautuherferð á þessu: „Við verðum að vernda aðra og maður gerir það ekki fyrir sig sjálfan þig, heldur... Fólk var útilokað sem sagði að það vildi ekki láta sprauta sig með þessum skít.“  Talandi um það, „My body, my choice“ (ísl: minn líkami, mitt val), var það ekki eitthvað, manstu? En það á greinilega bara við þegar kemur að því að drepa ófætt líf. En ekki um hvort ég læt sprauta mig með einhverju svona genadóti. En eins og ég sagði þá var þetta glæpsamleg hegðun, glæpsamlegt athæfi. Og hverju hefur maður áorkað? Milljarða og aftur milljarða hagnaði var flætt yfir í kassa lyfjarisanna. Borgararnir þurftu að borga fyrir allt og sitja nú auðvitað uppi með skaðann sem allir mRNA bóluefnisframleiðendur hljóta að hafa verið meðvitaðir um. Þeir eru ekki heimskir. Þeim hefði allavega átt að vera kunnugt um hann. Og ég segi líka að allir þessir stjórnmálamenn, allir embættismenn sem studdu þessa mRNA-sprautuherferð, sem hræddu fólk, hótuðu því, sem studdu það, þeir hefðu líka getað vitað hvers konar skítaefni þetta er. Þeir gerðu það ekki, þetta hefði verið þeirra verkefni og þvi er ég alveg með það á hreinu, já, þetta var glæpsamleg hegðun.

Kla.tv:

Og hvernig tekst maður á við slíkan risa, eða hvað getur maður alveg konkret?

Háttsettir vísindamenn sem eru margverðlaunaðir þaggaðir niður

Christina Anderson: Já, það er nefnilega hörmulegt. Í grundvallaratriðum hafa borgarar ekki marga möguleika til að grípa til aðgerða gegn þessu. Þú hefur upplifað þetta. Jafnvel háttsettir vísindamenn sem eru margverðlaunaðir, nóbelsverðlaunahafar, og læknar hafa einfaldlega verið þaggaðir niður fyrir að hafa aðra skoðun en hina hefðbundna frásögn leyfir. Og þannig verður það í grundvallaratriðum fyrir hvern stjórnmálamann úr rótgrónu flokkunum, ég segi það núna, CDU, SPD, FDP o.s.frv. Svo lengi sem þeir eru ekki í áskrift að þessari hefðbundnu frásögn verða þeir ekki lengur stillt upp í flokkum sínum og skipta þá nánast ekki lengur máli. Það vilja þeir forðast svo þeir styðja þennan einhliða málatilbúnað. Með öðrum orðum, borgarar hafa eiginlega ekki lengur möguleika á að kjósa flokka , það er komið gat milli þings og þjóðar, það er í það minnsta ekki mikla fjölbreytni að finna þar. En það er óástættanlegt að svipta borgarann ​​röddinni og því erum við að reyna að breyta hér í dag, með því að styðja þær milljónir borgara sem vilja ekki sætta sig við að frelsi sitt, lýðræði og réttarríki verði rænt ... Og ef ég tala nú um Þýskaland, þá erum við líka að tala um 20. grein, 2. mgr. í stjórnaskránni: allt ríkisvald sprettur frá fólkinu. Hornsteinn sérhvers lýðræðis. Og það er einmitt það sem á að ýta þessu til hliðar af þessum hnattrænu mann-óvinum. Fullveldi landsins í Þýskalandi er eingöngu þýska þjóðin og enginn annar. Og því á að útrýma. Og því erum við hér í dag til þess að hindra það. Enda á þýska þjóðin skilið að vera fullvalda í sínu eigin landi, þ.e. Þýskalandi. Og hver sá sem reynir að grafa undan því, já, ég get ekki orðað það öðruvísi, er í rauninni svikari við þjóðina.

Kla.tv:

Og hverjum myndir þú ráðleggja áhorfandanum sem situr heima við skjáinn. Hvað er til ráða í stað þess að stinga höfðinu í sandinn?

Christina Anderson: Ó, auðvitað myndu þeir elska það ef fólk styngi bara hausnum í sandinn. Þetta má ekki gerast. Upp úr sandinum, og berið höfuðið hátt, fólk þarf að leitast meir eftir því að hitta stjórnmálamenn sína, segja þeim hvað þeir sætta sig ekki lengur við og síðast en ekki síst, byrja aftur að veita þeim aðhald. Því að veruleikinn er sá að ríkisstjórnin og kjörnir fulltrúar þjóðarinnar eru starfsmenn þjóðarinnar. Þetta þýðir að fólkið er það sem á að ráða ferðinni - en ekki öfugt. Í grundvallaratriðum er boltinn hjá ykkur. Þeir ættu að sjá til þess að frelsi, lýðræði og réttarríki fáist aftur. Að vera í vörn eða meðvirkur með þessu ástandi hjálpar ekkert. Skaðinn getur orðið gríðarlegur á meðan ekkert er að gert. Þannig farið og látið í ykkur heyra. Og umfram allt, eitt ráð: Slökktu á þessu skítasjónvarpinu þínu. Í alvöru. Þú missir ekki af neinu. Sjónvarpið gerir þig bara heimskan. Slökkva á því. Og ég lofa þér, heildarvellíðan þín mun aukast verulega.

Kla.tv:

Þú nefndir í innganginum þínum að þú munir berjast. Þú munt heldur ekki hætta. Og þú komst því óneitanlega mjög kröftuglega til skila. Hvaðan færðu þennan innri styrk og ákveðni?

Veit hvernig það er að lifa í harðstjórn og einræði

Christina Anderson: Að hluta til vegna þess að ég veit hvernig það er að lifa í harðstjórn. Guði sé lof þá þurfti ég aldrei að finna fyrir því sjálf en skoðaði mjög nákvæmlega ýmis lönd sem upplifðu það. Ég skoðaði líka mína eigin sögu mjög vel og reyndi að komast að því ... því spurningin er alltaf: hvernig var þetta eiginlega mögulegt? Allir standa eins og álfar út úr hól frammi fyrir þessari spurningu, hvernig gat þetta eiginlega gerst? Í guðs bænum, líttu í kringum þig á hvað hefur gerst á síðustu þremur árum. Og þeir þurftu ekki nema þrjú ár til að koma aftur á slíkum aðstæðum. Það tók í denn að vísu aðeins lengri tíma. En ég hef skoðað það mjög vel og ég veit hvernig lífið er undir harðstjórn, undir einræði. Og ég mun gera allt, allt, til að hlífa börnunum mínum við slíkri framtíð. Og ég held að það sé vegna þessa sem ég þigg ákveðni mína og þar með skilyrðislausan vilja minn. Nei, ég mun verja frelsi, lýðræði og réttarríkið. Og nú, þar sem það er nauðsynlegt- örugglega að endurheimta það aftur.

Viðtalið í heild sinni má sjá hér neðar:

Skildu eftir skilaboð