Sölvi Tryggva opnar sig um svívirðilegan glæp í nýrri bók

frettinInnlentLeave a Comment

Fjöl­miðlamaður­inn Sölvi Tryggva­son, sem held­ur úti hlaðvarp­inu Podcast með Sölva Tryggva, hef­ur setið við skrift­ir síðustu mánuði. Á miðviku­dag­inn kem­ur út bók­in Skugg­ar en hún seg­ir frá ör­laga­ríkum tím­um í lífi Sölva, þar sem hann var ranglega bendlaður við svívirðilegan glæp. Bókin er saga falls, útskúfunar, upprisu og uppgjörs.

Um bókina:

„Skuggar segir frá örlagaríkum tímum í lífi Sölva Tryggvasonar. Ósönn slúðursaga, þar sem hann var ranglega bendlaður við svívirðilegan glæp, fór á flug á samfélagsmiðlum og fjölmiðlar hentu hana á lofti. Við tók hvirfilbylur samfélagsumræðunnar sem jókst enn með tilkynningu um að konur hefðu kært Sölva til lögreglu. Á einni viku fór hann frá hápunkti ferils síns yfir í að missa mannorð sitt og lífsviðurværi. Fallið var hátt, Sölva var útskúfað úr samfélaginu og lagði á flótta út í lönd. Það ferðalag var ekki síður inn á við þar sem hann reyndi að skilja hvað hefði gerst og brá um leið ljósi á sína dýpstu skugga, myrkur og áföll.

Annar maður hefur nú verið dæmdur fyrir þann glæp sem Sölvi var bendlaður við og lögregla hefur vísað frá öllum kærum á hendur honum. En var það helber tilviljun að einmitt nafn Sölva skildi fléttast inn í þessa harkalegu atburðarás, eða höfðu stórir brestir sem hann burðaðist með komið í bakið á honum? Sölvi leiðir lesandann með sér í þetta afdrifaríka ferðalag þar sem hann snýr öllum steinum við til að reyna að skilja hvernig þetta allt gat gerst, veltir samfélagsumræðunni fyrir sér og þætti fjölmiðla. Skuggar er uppgjör Sölva við sjálfan sig og samfélagið allt,“ seg­ir á vef bóka­út­gáf­unn­ar Sög­ur Útgáfa.

Hægt er að skrá sig í útgáfuteiti Sölva Tryggvasonar hér.

Skildu eftir skilaboð