Frakkland bannar allar kröfugöngur til stuðnings Palestínu

frettinErlent, Gústaf Skúlason1 Comment

Gústaf Skúlason skrifar:

Eftir að hryðjuverkasamtökin Hamas gerðu árás á Ísrael, þá bannar ríkisstjórn Frakklands allar stuðningsgöngur við Palestínu í Frakklandi. Munu forráðamenn slíkra stuðningsaðgerða við Palestínu verða handteknir af lögreglunni.

Samkvæmt Politico hefur Gérald Darmanin innanríkisráðherra Frakklands sent „ströng fyrirmæli” um að stöðva öll fyrirhuguð mótmæli til stuðnings Palestínu. Vísar hann til þess að „mótmælin munu að öllum líkindum trufla almenna reglu” í landinu. Ráðherrann skrifar:

„Að skipuleggja slík mótmæli á að leiða til handtöku viðkomandi.”

Streyma út á götur og torg til að fagna morðum Hamas

Stuðningsaðilar hryðjuverkasveitarinnar Hamas hafa streymt út á götur og torg í hinum ýmsu löndum í Evrópu til að hylla hryðjuverkin á Ísraelsmönnum. Hér að neðan eru nokkur myndskeið því til sönnunar:

Austurríki

Frakkland

England

Þýskaland

One Comment on “Frakkland bannar allar kröfugöngur til stuðnings Palestínu”

  1. Og í Sydney í Ástralíu var hrópað ´Gas the Jews´. Sorglegt en svona bjóða Vesturlönd hættunni heim. Kæmi ekki á óvart ef stutt væri í öldu hryðjuverka í Evrópu og víðar.

Skildu eftir skilaboð