„Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, er alþjóðlegt gabb sem notað er til að stuðla að myndun heimsstjórnar.” Þetta segir Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, á nýju kosningamyndbandi.Ef Trump verður forseti aftur, þá mun hann umsvifalaust rífa upp heimsfaraldurssáttmála WHO, sem hann segir ógna fullveldi þjóða. „Ég mun ekki leyfa, að lýðheilsan sé notuð sem fyrirsláttur til að stuðla að framgangi alheimsstjórnar.”
Trump segir á myndbandinu sem sjá má neðar á síðunni:
„Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin er orðin að spilltu alþjóðasvindli sem Bandaríkin borga fyrir en Kína á og stjórnar. Þegar Kínaveiran kom til okkar fyrir þremur árum, þá sópaði Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin yfir spor kínverska kommúnistaflokksins – hvert einasta fótmál. Af þessum sökum var það mér mikill heiður að slíta sambandi Bandaríkjanna við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina.”
Kínverski kommúnistaflokkurinn stjórnar WHO
Áður en Bandaríkin yfirgáfu WHO, þá greiddu þeir stofnuninni 500 milljónir dollara á ári:
„Þetta er dæmigert fyrir Bandaríkin, vegna þess að maður veit ekki hvað í fjandanum verið er að gera. Því miður fór spillti Joe Biden á heimskulegan hátt aftur inn í Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og borgaði fullt verð án nokkurra samninga eða umbóta. Núna þrýstir Biden á að sniðganga öldungadeild Bandaríkjaþings til að skrifa undir heimsfaraldurssáttmála sem afhendir Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni fullveldi Bandaríkjanna. Enn og aftur: þeim er stjórnað af Kína.”
Mun stofna nýtt þjóðabandalag og mynda nýja heilbrigðisstofnun
Samkvæmt Trump mun heimsfaraldurssáttmálinn m.a. leiða til „stórfelldrar ritskoðunar á tjáningarfrelsi í lýðheilsumálum – rétt eins og þeir ritskoðuðu sannleikann um Wuhan rannsóknarstofuna.“
„Í næstu ríkisstjórn Trumps verður sáttmálanum umsvifalaust sagt upp. Ég mun ekki leyfa, að lýðheilsan sé notuð sem fyrirsláttur til að stuðla að framgangi alheimsstjórnar. Það er það sem þeir eru gera. Glóbalistar. Bandaríkin munu draga sig út úr hinni spilltu stofnun WHO, sem á skilið að verða alfarið lögð niður og skipt út, vegna fullkominna mistaka þeirra með Covid, sem var stórslys.”
„Þá mun ég beita mér fyrir því að mynda nýtt þjóðabandalag sem leggja mun mikla áherslu á heilsuvernd samtímis sem áhersla er lögð á fullveldi og frelsi.”
Sjá má myndbandið hér að neðan:
One Comment on “WHO er ekkert nema alþjóðlegt svindl sem á umsvifalaust að leggja niður”
Alveg rétt hjá honum, ég hef altaf sagt að hann væri flottur og segði það sem aðrir þora ekki að segja,, en allir þar á meða mínir nánustu djöfluðust í mér út af mínum skoðunum,,en ég lét mig ekki og læt mig aldrei ef að ég hef skoðun sem ég hef trúi á,,,Ég vildi óska að ísland hefði marga karla eins og hann í ríkisstjórn,,þá væri landinu stjórnar í þágu almennings………