Kína hefur sent sex herskip til Miðausturlanda

frettinErlent, Gústaf Skúlason2 Comments

Gústaf Skúlason skrifar:

Kommúnista-Kína hefur sent sex herskip til Miðausturlanda þar sem spenna magnast á svæðinu vegna átaka Ísraels við Hamas. Kína sendi 44. eftirlitssveit sjóhers Frelsishersins til Shuwaikh-hafnarinnar í Kúveit 18. október.

Í skipalestinni eru Zibo og Urumqi með 052D eyðingarflaugar til að granda eldskeytum.

Samkvæmt EU-Times sagði yfirmaður kínversku hersveitarinnar:

„Á þessu ári eru 5 ár liðin frá myndun stefnumótandi samstarfs Kína og Kúveit og einnig 10 ára afmæli átaksins Belti og braut. Vonast er til, að þessi heimsókn muni auðvelda gagnkvæman skilning og traust og stuðla að samskiptum og samvinnu milli landanna tveggja og herafla þeirra.”.

Kína minnir á hernaðarmátt sinn

Herskipin hafa verið á heræfingum í Aden-flóa síðan í maí og nýlokið flotaæfingu með sjóher Ómans. Nærvera kínversku herskipanna í Mið-Austurlöndum er aflsýning Kína og áminning um hagsmuni þeirra á svæðinu á sama tíma og bandaríska varnarmálaráðuneytið sendi tvo flugmóðurskip til svæðisins nýlega.

Bandaríkin hafa sett hermenn í viðbragðsstöðu og einnig sent eldflaugavarnakerfi til nokkurra hernaðarmannvirkja í Miðausturlöndum. Samkvæmt kínverska ríkissjónvarpinu sagði Xi Jinping, aðalritari Kommúnistaflokksins: um átök Ísraels við Hamas:

„Fyrsta forgangsverkefnið núna er vopnahlé eins fljótt og auðið er, til að forðast að átökin vaxi eða fari jafnvel úr böndunum og valdi alvarlegri mannúðarkreppu.”

Hér má sjá frétt True News um málið

Hér má sjá frétt The Times of India um málið

2 Comments on “Kína hefur sent sex herskip til Miðausturlanda”

  1. Það styttist í Þriðju Heimsstyrjöldina, hún virðist óumflýjanleg enda vitfirrt fólk við stjórn í heiminum.

  2. Meðan idiotarnir fyrir vestan álinn og skósveinar þeirra fá að stjórna heiminum gagnrýnislaust þá er ekki von á góðu!

Skildu eftir skilaboð