Gústaf Skúlason skrifar:
Hvernig gat Covid, sem var með mjög lága dánartíðni – 0,1% fólks undir 70 ára aldri vorið 2020, þróast upp í fjöldageðrof, ritskoðun, nornaveiðar á óbólusettum o.s.frv.? Það er vegna þess að þetta var allt saman skipulagt fyrir fram. Orðin eru bandaríska öldungadeildarþingmannsins Ron Johnson í nýju viðtali á Fox Business (sjá myndskeið að neðan).
Í viðtali við Fox segir bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Ron Johnson, að faraldurinn svokallaði og „meðhöndlun“ hans hafi verið skipulögð fyrir fram. Þess vegna varð þetta svo galið.
Stór öflugur hópur fólks sem mun aldrei viðurkenna að hafa gert mistök
Ron Johnson segir í Fox:
„Allt var fyrir fram skipulagt af elítuhópi fólks. Það er mikið áhyggjuefni. Það verður að afhjúpa þetta. En því miður vilja mjög fáir, jafnvel á þinginu, rannsaka málið. Það var þrýst á bólusetja fólk, þeir vilja ekki vita af því, að bóluefnið gæti hafa valdið skaða og dauða. Svo margir vilja einfaldlega ekki viðurkenna að þeir hafi haft rangt fyrir sér og þeir munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að forðast að hægt sé að sanna, að þeir höfðu rangt fyrir sér. Við erum hér að glíma við mjög öflugan hóp fólks.”
Skref fyrir skref verið að taka frelsið af okkur
Ron Johnson segir málið ganga út á að snúa samfélaginu á haus og svipta fólk frelsinu. Öldungadeildarþingmaðurinn útskýrir:
„Það verður að afhjúpa sannleikann. Fleiri Bandaríkjamenn þurfa að hlusta á sannleikann, taka höfuðið upp úr sandinum, opna augun og skilja hvað er að gerast í þessu landi. Við erum á leið inn á stórhættulega braut, sem búið er að leggja út og er skipulögð af elítuhópi fólks sem vill ná algjörri stjórn á lífi okkar. Það er það sem verið er að gera skref fyrir skref.”
2 Comments on “„Heimsfaraldurinn” var skipulagður af valdamikilli elítu”
Covid var skipulögð aðgerð valdaelítunnar. Ég held að flestir viti það núna. En þessir manndjöflar verða aldrei dregnir til ábyrgðar því þetta fólk stjórnar heiminum. Og þau munu bara halda áfram með sín illu plön.
Getur verið að allt gay og trans stuffið sé af einhverju leyti ,,skipulagt“ af svipuðu fólki ? Kæmi ekki á óvart.