Í fyrsta skipti í 500 ár: Margrét Danadrottning afsalar sér völdum

frettinErlent1 Comment

Gústaf Skúlason skrifar:

Í miðjum nýársfagnaði bárust tíðindi frá Danmörku sem ekki hafa borist í 500 ár: Krúnuhafinn afsalaði sér völdum. Árið 2024 verður Margrét Þórhildur Danadrottning ekki lengur þjóðhöfðingi Danmerkur.

Á gamlárskvöld, aðeins nokkrum klukkustundum áður en klukkan hringdi nýja árið inn, tilkynnti Margrét Þórhildur Danadrottning að hún hygðist hætta sem drottning. Þetta tilkynnti hún í árlegri áramótaræðu sinni, sem send var í danska DR.

Ástæðan er hár aldur hennar, 83 ára, sem hún segir hafa tekið sinn toll. Í ræðu sinni kom hún inn á aðgerð í baki sem hún fór í fyrr á þessu ári og hefur eflaust átt sinn þátt í ákvörðun hennar. Þann 14. janúar hefur hún verið drottning í nákvæmlega 52 ár og þann dag segir afsalar hún völdum formlega. Þá mun Friðrik krónprins, elsti sonurinn, taka við krúnunni sem konungur Danmerkur..

Nákvæmlega 500 ár eru síðan krúnuhafi Danmerkur afsalaði sér völdum. Það var Kristján II. þekktur í Svíþjóð sem Kristján „harðstjóri.“ Hann afsalaði sér völdum ár 1523, skömmu eftir að Gustav Vasa hafði rekið hann út úr Svíþjóð. Það ár fagnaði Svíþjóð 500 árum sem opinber frjáls þjóð.

One Comment on “Í fyrsta skipti í 500 ár: Margrét Danadrottning afsalar sér völdum”

  1. Það best sem gæti komið fyrir dani er að þessi alætusöfnuður yrði lagður niður
    Ég las einhversstaðar að drottningarkvikindið kosti danska skattborgara yfir 200 milliónir danskra króna á ári.

Skildu eftir skilaboð