Epsteinskjölin: Leynilegar kynlífsmyndir með Clinton og prins Andrew – Trump var aldrei á eyjunni

frettinErlent, Gústaf Skúlason4 Comments

Gústaf Skúlason skrifar:

Ólíkt hafast forsetarnir og tigna fólkið að. Fjármálamaðurinn Jeffrey Epstein tók upp kynlífsmyndbönd með Andrew prins, Bill Clinton og breska milljarðamæringnum Richard Branson. Því er haldið fram í nýjum gögnum sem hafa verið birt, þar sem nafn prins Albert er sagt koma fyrir a.m.k. 69 sinnum. Fyrri sögusagnir um Donald Trump eru dregnar til baka. Hann kom aldrei til barnaníðingseyjunnar.

Talið er að Jeffrey Epstein hafi stjórnað háþróaðri fjárkúgun í samvinnu við ísraelsku leyniþjónustuna Mossad að sögn Frjálsra tíma.

Epstein kvikmyndaði kynlífssenur með Clinton, Andrew prins og Richart Branson

Undanfarna daga hafa áður leynileg rannsóknarskjöl um svikahrappinn Epstein verið gerð opinber. Epstein bauð valdamiklum mönnum ungar stúlkur og konur með aðstoð „frúarinnar“ Ghislaine Maxwell. Í nýjustu gögnum eru meðal annars tölvubréf frá Söru Ransome, sem bar vitni gegn Maxwell þegar hún var ákærð fyrir kynlífssölu. Ransome skrifar:

Barnakynlífssölumaðurinn með barnkynlífsiðkaranum Clinton.

„Þegar vinur minn stundaði kynlíf með Clinton, Andrew prins og Richard Branson tók Jeffrey upp kynlífsmyndbönd við hvert einasta tækifæri. Það er svekkjandi, að Epstein sjálfur kom ekki fram í neinni af myndunum. Hann var of slægur til þess.“

Reynt að klína subbusögum upp á Trump sem síðar eru teknar til baka

Ransome segir einnig, að vinur hennar hafi stundað kynlíf með Donald Trump ásamt „mörgum stelpum“segir í frétt Daily Mail. Donald Trump hafnar þessum upplýsingum sem röngum og ástæðulausum og bendir á, að sögur Ransome hafi verið dregnar til baka í réttarhöldum. Reyndar notaði lögfræðingur Epstein, Alan Dershowitz tölvubréfin, sem sönnun þess að Ransome væri ekki trúverðugt vitni. Sjálfur er Dershowitz sakaður um í öðrum skjölum sem nú hafa verið birt, fyrir að hafa stundað kynlíf með ólögráða stúlkum Epsteins í nokkur skipti.

Hér má sjá hluta af síðu 113 í skjali 1230-12 sem hreinsar Donald Trump:

Sagan um barnaníðshring Epstein mun halda áfram.

4 Comments on “Epsteinskjölin: Leynilegar kynlífsmyndir með Clinton og prins Andrew – Trump var aldrei á eyjunni”

  1. Sannleikans vegna, Júlíus Einarsson? Er sannleikurinn ekki betri en lygin? Finnst þér að það þurfi að ,,bera blak“ af því sem satt er og rétt?

  2. Páll, það er ótrúlega mikið af fólki á Íslandi sem horfir í gegnum hálftommu rör þegar það myndar sínar skoðanir, þess vegna skiptir sannleikurinn þetta fólk engu máli, það bara fylgir fjöldanum.

    Páll, hvað heldur þú að það séu margir á Íslandi sem myndi sínar skoðanir á alþjóðasamfélaginu út frá Hollywood myndum 😉

  3. Fyndið hvernig pistlahöfundur skautar framhjá samstarfsaðila Epsteins. Það er mun alvarlega en allir „kúnnar“ hans. Það þýðir að stjórnvöld í Ísrael tóku ákvörðun um að nota börn í kynferðislegum athöfnum til að vernda morð og landsstulds stefnu þeirra. Hitt eru þó bara ógeðslegir einstaklingar að svala sínum ógeðfelldu hvötum. Að lýðræðislega kosnir fulltrúar skuli gera svona og embættismenn slíks ríkis sýnir svart á hvítu að þetta ríki hefur fyrirgert rétti sínum til að taka þátt í þessum heimi. Það ætti að einangra Ísrael frá umheiminum og veita Palestínu stöðu fullvalda ríkis og veita þeim inngöngu í NATO. Þegar ísraelska þjóðin hefur látið handtaka þá sem bera ábyrgð og framkvæmdu þetta samstarf við Epstein og dæmt þau í ævilangt fangelsi getum við leyft Ísrael að opnast. Ef þjóðin er ekki tilbúin til þess þá geta þau lifað með afleiðingunum.

Skildu eftir skilaboð