Foreldrafélög barna í kynáttunarvanda (ónot í eigin skinni)

frettinHelga Dögg Sverrisdóttir, KynjamálLeave a Comment

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:

Í Noregi og Svíþjóð eru starfrækt foreldrafélög barna sem glíma við ónot í eigin skinni. Félögin bera sama nafn Genid. Félögin halda úti upplýsingasíðu, hvort í sínu landi, fyrir foreldra sem eru í sömu stöðu og þau. Hér á landi fellur foreldrafélagið inn í trans- hagsmunasamtökin.

Án íhlutunar hagsmunasamtaka

Foreldrafélögin hafa sérstöðu. Þau tengjast ekki á neinn hátt inn í trans-hugmyndafræðina eða samtökum sem tengjast henni, pólitík eða trúarbrögðum. Þetta eru foreldrar sem vilja börnum sínum allt hið besta og nota til þess gagnreyndar aðferðir og þekkingu. Þau vilja réttar upplýsingar sem sérfræðingar hafa fram að færa, m.a. um lyfjagjöf. Foreldrafélögin voru stofnuð því foreldrum fannst þau vanta hlutlausar upplýsingar og ráðgjöf.

Hvað hafa þau að segja

Foreldrar vilja að börnin fái að taka út kynþroska án aðkomu læknisfræðilegrar íhlutunar. Þau vilja að börnin fái leiðsögn óháðra aðila, ekki hagsmunasamtaka. Þau hafa lagt áherslu á að hlusta á fræðimenn á sviðinu í heimlöndum sínum.

Foreldrarnir benda á að oft eru aðrir andlegir sjúkdómar undirliggjandi hjá barni sem allt í einu glímir við þann vanda að það getur ekki skilgreint kyn sitt. Þau nefna sjálfsskaða, ADHD, einhverfu, átraskanir, áföll, o.fl. Allt veikindi sem þarfnast annars konar umönnunar.

Markmið foreldrafélaganna er að ungu fólki sem á í vanda með að skilgreina kyn sitt sé mætt með hreinskilni, varúð og að umönnun þeirra, eins og öll önnur umönnun, sé gagnreynd. Við elskum börnin okkar og viljum þeim það allt hið besta segja þau.

Foreldrarnir í Noregi bentu á að rannsóknir sýni að félagsleg umskipti, að skipta um nafn og fornafn, geti orsakað að barn festist í kynjamisræminu og þar með verður erfiðara fyrir barn að viðurkenna líffræðilega kynið sitt.

Orðið fyrir aðkasti

Foreldrafélögin benda á að trans-aðgerðasinnar og hagsmunasamtök hafi gagnrýnt þau. Þetta fólk hefur kallað foreldrana fordóma- og hatursfulla. Sænska deildin skrifaði grein í Gautarborgar póstinn, sem er dagblað, til að vekja athygli á þessu.

Þau segja m.a. við höfum lengi velt því fyrir okkur hvers vegna trans-aðgerðasinnar og bandamenn þeirra hafi meiri áhyggjur af því að fordæma samtökin og foreldra í stað þess að svara okkur í málefnalega.

Foreldrarnir spyrja, Hvað segjum við börnunum okkar eftir 10 ár ef við þegjum núna og þau draga okkur til ábyrgðar fyrir þöggunina?

Heimasíða sænska félagsins er Genid.se og bæði félög hafa snjáldursíður.

Skildu eftir skilaboð