Hallur Hallsson skrifar:
Djúpstæður ágreiningur er milli forseta Póllands Andrzej Duda og stjórnar hins nýja forsætisráðherra Donald Tusk sem skipaði lögreglu að ráðast inn í forsetahöllina til að handtaka tvo þingmenn sem forsetinn hafði náðað. Þingmennirnir höfðu leitað skjóls í forsetahöllinni. Þingmennirnir eru Mariuz Kaminski fyrrum innanríkisráðherra og Maciej Wasik. Þeir höfðu verið dæmdir í tveggja ára fangelsi fyrir að misfara með vald þegar þeir fóru fyrir aðgerðum gegn spillingu; Anti Corruption Bureau þáverandi hægri stjórnar. Forsetinn hafði náðað þá.
FORSETINN MIÐUR SÍN
Duda ávarpaði þjóðina og kvaðst miður sín um atburðarás og lýsti þeim sem heiðarlegum. Tvímenningarnir höfðu verið kjörnir á þing sl. haust en meirihlutinn neitað að viðurkenna setu þeirra. Forsetinn kveður þá löglega kjörna þingmenn því hann hafi sem æðsti maður framkvæmdavaldsins haft fulla heimild til þess að náða mennina.
TUSK ÁSAKAR DUDA
Skömmu síðar hélt Tusk blaðamannafund og kvað stöðuna "ótrúlega". Hann kvað Duda vera hjálpa mönnunum að komast undan réttvísi og virða yrði handtökuskipun dómstólsins. "Þarna er verið að notfæra embætti í skjóli þess að valdi verði ekki beitt." Daginn eftir, á miðvikudag ruddust lögreglumenn inn í forsetahöllina. Kaminski hefur lýst því yfir að hann hafi hafið hungurverkfall.