Gústaf Skúlason skrifar:
Það var mikill sigur fyrir Donald Trump, þegar forkosningar hófust í Iowa í gær. Þrátt fyrir nístandi kulda fór fólk á kjörstað til að kjósa. En allir eru ekki ánægðir með sigurvegarann.
Fljótlega eftir að byrjað var að telja atkvæðin í Iowa-ríki varð ljóst, að Donald Trump færi með sigur af hólmi. Þegar nær öll atkvæði voru talin hafði Trump unnið með 51% atkvæða, samkvæmt Associated Press (AP). Það þýðir frábæra byrjun á prófkjöri repúblikana um tilnefningu forsetaframbjóðanda flokksins fyrir kosningarnar í haust.
Í sigurræðu sinni (sjá að neðan) fagnaði Trump úrslitunum og þakkaði fyrir þann stuðning sem hann hafði fengið. Hann ræddi um sameiningu Bandaríkjamanna til að takast á við þau vandamál sem Bandaríkin glíma við, þar á meðal hinn mikla ólöglega fólksinnflutning. Vill hann setja ólöglega innflytjendur á stóran „útvísunarlista“ og senda úr landi
Ron DeSantis varð í öðru sæti með 21,2%, Nikki Haley í þriðja sæti með 19,1% og Vivek Ramaswamy í fjórða sæti með 7,7%. Vivek Ramaswamy hefur dregið framboð sitt til baka eftir úrslitin og hvetur repúblikana til að fylkja sér um Trump. Ron DeSantis ásakaði fjölmiðla að tilkynna um úrslitin áður en allir voru búnir að kjósa og sagði fjölmiðlana bara hafa áhuga á Trump.
Stærsta forskot sem frambjóðandi repúblikana hefur áður haft í forkosningu í Iowa var Bob Dole sem leiddi um 12,8% árið 1988 samkvæmt Reuters.
Hér að neðan má sjá dæmi um viðbrögð fólks á X yfir yfirburðasigri Trumps í Iowa:
The impeached him twice
Indicted him 4 times
Raided his house with the FBI and buried him with lawsuits
The deep state did everything it could to stop him, but President Trump just won the Iowa caucus
MAGA is BACK🔥 pic.twitter.com/ZgBobWtwvR
— DC_Draino (@DC_Draino) January 16, 2024
President Trump has been projected to win Iowa.
Over $250 million was wasted on Nikki Haley and Ron DeSantis's campaign.
It's time for all other candidates to DROP OUT!!!
— Graham Allen (@GrahamAllen_1) January 16, 2024
Was there ever any doubt?
Trump wins Iowa caucus. 🇺🇸🇺🇸🇺🇸 pic.twitter.com/dcWqoL78sM
— Juanita Broaddrick (@atensnut) January 16, 2024
2 Comments on “Trump sigrar í Iowa – sigurgangan hafin að endurkomu í Hvíta húsið”
Sumir hryðjuverkamenn sprengja sig í tætlur, aðrir verða forsetar…
Einar, er hann Guðni ekki að hætta svo er nú ólíklegt að gamla hróið hann Joe Biden nái kjöri í lok árs ef hann lifir svo lengi 😉