Hallur Hallsson skrifar:
Trúður verður ekki kóngur
þó í höll flytji.
Höllin verður að sirkus.
Tyrkneskur málsháttur.
Ef við skiptum kóngi fyrir forseta og höll fyrir Bessastaði þá gæti málshátturinn hljóðað: „Trúður verður aldrei forseti og Bessastaðir verða að sirkus.“ Ég hygg að þjóðin sé einhuga um að ekki sé rétt að trúður geri Bessastaði að sirkus. Þetta álitaefni á við um forsetaframboð Jóns Gnarr sem verður að fá svar við. Hvað verður um trúðinn? Hann fer á hilluna, svarar Gnarr væntanlega. Ok. Sagt er að forseti geri fátt eitt annað en sitja veislur. Þá er annað álitaefni uppi. Er Jón Gnarr hæfur til annars en að halda veislur fyrir vini og fína fólkið?
Kross á Bessastaðakirkju?
Jón Gnarr var borgarstjóri 2010-2014. Það var sagt að „skuggastjóri“ Jóns Gnarr væri baki luktum dyrum Ráðhússins. Allir vissu en enginn nefndi. Það var Degi ljósara hver um valdatauma hélt. Jón Gnarr lofaði reykvíkingum ísbirni í Laugardal. Hann stóð ekki við loforð sitt. Gnarr átti til að gnarrast í reykvíkingum. Verður meira að marka loforð nú? Hann kveðst ætla að sinna starfi forseta af auðmýkt með styrk Guðs og manna. Er hann tilbúinn að taka vindhana Guðna Th. niður og setja upp kross á Bessastaðakirkju? Þannig sýna meir en þúsund ára kristnum sið virðingu...
Gnarr og Icesave
Ólafur Ragnar Grímsson forseti [1996-2016] vísaði Icsesave til þjóðarinnar þegar Gnarr sat í embætti. Jón Gnarr hlýddi pólitískri klíku „skuggastjóra“ síns gegn þjóðinni. Gnarr sagði „já“ við Icesave. Jón Gnarr kvaðst vilja kjósa Icesave í burtu [með því að senda þjóðinni allt að 500 milljarða króna reikning] því ESB-umsóknin gæti runnið út í sandinn og ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir félli sem gnarr kvað hafa “...grafalvarlegar afleiðingar fyrir þjóðina.“ Það var vont. Forseti þarf ávallt að vera tilbúinn að taka á erfiðustu málum af hlutlægni og víðsýni; stjórnarkreppum og málsskotsrétti forseta. Getur Jón Gnarr einlæglega sagt að hann sé hæfur?
3 Comments on “Af trúði, kóngi og forseta Íslands”
Núverandi er forseti er varla betri en keila og ég hef engan áhuga að skipta út keilu fyrir trúð.. Á ekki von á að íslenska þjóðin kýs rétt en það þarf sérstaklega að fylgjast með svindli. Fjölmiðlar munu vera duglegir að flytja okkur nýjar skoðannakannanir.. Mjög sennilega munu þeir gefa okkur 4-5 efstu frambjóðendur en varist að trúa þessum könnunum.
Algjörlega sammála þér Trausti!
Það er svo auðvelt að stýra hjörðinni með skoðunakönnunum þegar sjálfstæð hugsun er nær engin, það vilja bara allir vera í vinsælasta hópnum. Fyrir svona fjörtíu árum síðan hefði verið hlegið af svona trúðum eins og Jóni Gnarr eða Baldri þórhallsyni.
Ég er nú þeirrar skoðunar miðað við þær hugmyndir sem flest þetta fólk hefur á þessu embætti, þá ætti að leggja þetta embætti niður þar sem það er vita gagnslaust!
Af öllum þessum frambjóðendum er í rauninni bara einn einstaklingur sem er með einhverju viti og það er hann Arnar Þór Jónsson.
Ég er að hugsa til myndar eins og; Being there og idiotcrazy.
https://www.youtube.com/watch?v=sP2tUW0HDHA&t=183s