Bloomberg greinir frá því, að Hvíta húsið íhugi að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum – til að hrifsa til sín enn frekara alríkisvald.
Ríkisstjórn Biden hefur aftur tekið upp viðræðurnar um að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum. Að sögn Bloomberg á það að „opna“ fyrir víðtækara alríkisvaldi stjórnvalda.
Neyðarráðstöfun myndi til dæmis gera það mögulegt að takmarka útflutning á hráolíu, hætta borunum og „hægja á losun gróðurhúsalofttegunda“ skrifar Bloomberg.
Að sögn CBS News þýðir þetta, að forsetinn fengi nánast samstundis aukið vald en á sama tíma gætu fréttir af hugsanlegu neyðarástandi í loftslagsmálum skapað óvissu meðal hlutaðeigandi fyrirtækja.
Breska The Telegraph bendir á að þetta væri virkilega ömurleg og hættuleg leið til að stjórna Bandaríkjunum:
„Að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum myndi leyfa forsetanum og stjórn hans, sem þegar hefur seilst langt inn á harðstjórnarsvæði með harðri reglusetningu og metfjölda fyrirskipana, að grípa til enn frekari valds til að hindra innlendan olíu- og gasiðnað sem hefur reynst ótrúlega seigur.“
2 Comments on “Hvíta húsið íhugar að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum”
Það er engin neyð neinsstaðar út af loftslagi.
Fífl.
Ætli karl uglan hann Joe Biden hafi leyst vind, mér dettur ekkert annað í hug sem skýringu fyrir þessu neiðarástandi?