Haukur Morthens 100 ára – Heiðurstónleikar

frettinInnlent, TónlistLeave a Comment

Hinn 17. maí næstkomandi verða liðin 100 ár frá fæðingu eins virtasta tónlistarmanns landsins, Hauks Morthens (17. maí 1924 – 13. október 1992). Ferðalag Hauks í gegnum tónlistina hófst þegar hann var aðeins aðeins 11 ára þegar hann kom fyrst fram með drengjakór Reykjavíkur. 19 ára gamall hóf Haukur atvinnuferil sinn með hljómsveit Bjarna Böðvarssonar og varð fljótt einn frægasti, ástsælasti og áhrifamesti söngvari Íslands. Hann risti nafn sitt djúpt inn í annál íslenskrar tónlistarsögu, ekki bara sem flytjandi heldur sem frumkvöðull og hugsjónamaður.

Mynd: Haukur Morthens 

Haukur Morthens var margþættur hæfileikamaður sem bar marga hatta. Hann fór ótroðnar slóðir bæði heima og erlendis. sá fyrsti sem gerði dægurlagasöng að atvinnu og um leið fyrstur slíkra til að reyna fyrir sér á erlendum vettvangi, hann var jafnframt lagahöfundur, hljómsveitarstjóri, skrifaði um tónlist í blöð og tímarit, flutti inn erlent tónlistarfólk, hélt tónleika og var með eigið útgáfufyrirtæki um tíma. Haukur var  fagmaður og reglumaður fram í fingurgóma,

Í tilefni af afmælinu verður  blásið til sannkallaðra stórtónleika í glæsilegasta tónleikasal landsins, Eldborgarsal Hörpu, sunnudaginn 26.maí.

Í tilefni af afmælinu verður  blásið til sannkallaðra stórtónleika í glæsilegasta tónleikasal landsins, Eldborgarsal Hörpu, sunnudaginn 26.maí.

Fram koma söngvararnir góðu Jógvan Hansen, Bogomil Font, Valdimar Guðmundsson og Unnur Birna Björnsdóttir ásamt hljómsveit undir stjórn Karls Olgeirssonar.  Sérstakir gestir verða meðlimir Karlakórs Kjalnesinga.  Allt verður gert til að skapa hugguleg stund í Eldborg til að heiðra minningu meistara Hauks Morthens.

Mynd: Valdimar Guðmundsson, Bogomil Font, Unnur Birna  og Jógvan

Vertu með þegar við minnumst og gleðjumst yfir arfleifð eins ástsælasta dægurlagasöngvara Íslands Hauks Morthens. Hægt er að næla sér í hér og í miðasölu Hörpu þar sem síminn er 5285050

Nánari upplýsingar veita:

Arngrímur Fannar
6921313
[email protected] 

Jógvan Hansen
[email protected]


Skildu eftir skilaboð