Páll Vilhjálmsson skrifar:
„Traust Ríkisútvarpsins er býsna hátt og hefur verið það í gegnum tíðina. Ég er ánægð með það og vona að þingið sé það líka,“ sagði Lilja Dögg menningarráðherra á alþingi í tilefni af fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur þingmanns um þá ráðstöfun yfirmanns Kveiks á RÚV að víkja Maríu Sigrún fréttamanni úr Kveiksteyminu.
María Sigrún gerði frétt um gjafir vinstrimeirihlutans í Reykjavík til olíufélaganna, lóðir andvirði 7-13 milljarða króna voru gefnar. Útsvarsgreiðendur bera skaðann. Frétt Maríu Sigrúnar var tekin af dagskrá Kveiks. Yfirmaður sagði innslag fréttakonunnar ófaglegt. Eftir mótmæli var fréttin sýnd í Kastljósi. Ekkert ófaglegt sást í fréttinni. Þvert á móti, faglegar upplýsingar og gagnrýnar spurningar einkenndu fréttainnslagið.
Yfirstjórn RÚV reynir að þegja af sér málið, eins og Brynjar Níelsson bendir á. Engin trúverðug skýring er í boði. Þá er betra að þegja og bíða eftir að málið falli í gleymsku.
Lilja ráðherra er pólitískur yfirmaður RÚV. Eðlilega segist hún ekki ætla að skipta sér af innanhússmálum á Efstaleiti. Hún lýsir ekki yfir trausti á stofnunina, en notar þátíð til að lýsa yfir að það hafi verið „býsna hátt" í gegnum tíðina.
Maríumál Sigrúnar auka ekki traustið á RÚV. Aðfarirnar í kringum Eurovision-keppnina juku ekki tiltrú. Skipulögð aðför að íslenskri tungu eykur ekki virðingu RÚV. Sími norðlensks skipstjóra var afritaður á Efstaleiti og gögn flutt þaðan á Stundina og Kjarnans, sem heita nú Heimildin. Þrír urðu að hætta á RÚV vegna lögreglurannsóknar; fréttamaður, fréttastjóri og ritstjóri Kveiks. Ekki styrkir það trúnaðarsamband almennings og Efstaleitis.
Allt þetta veit Lilja. Þess vegna vísaði hún í mælingar á trausti í stað þess að lýsa yfir trausti. Í viðtengdri frétt er haft eftir ráðherra:
Við höfum verið að styðja við einkarekna fjölmiðla og nú erum við að leggja lokahönd á fjölmiðlastefnu. Það er gríðarlega mikilvægt að hún komist til framkvæmda til að tryggja það að hér séu sterkir fjölmiðlar.
Einkareknir fjölmiðlar eru andstaða RÚV. Ef þeir glata trausti fara þeir í þrot. Nauðungaráskrift heldur RÚV á lífi. Forsendan er að RÚV njóti trausts, eru skilaboð ráðherra. Hverfi tiltrúin fara peningarnir annað. Neyðarfundur starfsmannafélags RÚV hefur verið haldinn af minna tilefni.