Kínversku veiruvísindin breyta um stefnu

frettinGeir Ágústsson, PistlarLeave a Comment

Eftir Geir Ágústsson:

Vesturlönd hentu áratugum og jafnvel öldum af vísindum sínum í ruslið í upphafi ársins 2020 og keyrðu á kínverskum vísindum til upphafs þessa árs. Það er nú gott því þessi kínversku vísindi eru alltaf að taka nýja stefnu eins og við munum (grímur eða ekki, loka skólabörn inni eða ekki, drepa gamalt fólk úr einmanaleika eða ekki, og svona mætti lengi telja).

Nú lesum við í fréttum að Kínverjar eru að losa um eitthvað af fangabúðatakmörkunum sínum.

Frá Oilprice.com:

Frá Reuters.com:

En af hverju að losa um takmarkanir núna?

Skoðum smittölur:

Nei, smit koma afnámi takmarkana ekki við.

Hvað er þá að gerast?

Jú, mótmæli!

Fólk er að mótmæla!

Svo mikið að meira að segja RÚV hefur tekið eftir því.

Skítt með smittölurnar. Skítt með einhver vonlaus takmörk sóttvarnarlækna sem fá borgað fyrir að hugsa um sóttir og ekki annað. Ekki um menntun barna. Ekki um andlega heilsu eldra fólks. Ekki um listir og menningu. Ekki um almennt heilbrigði almennings.

Merkilegri voru þau kínversku veiruvísindi ekki þegar á hólminn var komið.

https://twitter.com/cnbcindonesia/status/1598326755538112513

Skildu eftir skilaboð