Eftir Jón Magnússon:
Á annan áratug hafa fjárhirslur ríkisins í hinum vestræna heimi verið galopnar þegar vísindamenn og aðrir sem telja sig vera það, fara fram á rannsóknarstyrki,sem tengjast meintri hamfarahlýnun.
Í fréttum RÚV í gær var sagt frá viðamikilli rannsókn á atferli og möguleikum rjúpunnar til að lifa af í stöðugt hlýnandi umhverfi. Rannsóknin stendur væntanlega eins lengi og skattgreiðendur borga.
En hvaða hlýnun er þetta? Hvaða breytingar er verið að tala um?
Skv. þeim tölulegu gögnum um hækkun á hita á til lengri tíma á Stykkishólmi og Reykjavík í eina öld þá er hann óverulegur og sama gildir um mælingar á sjávarhita við Vestmannaeyjar.
Nú þegar frostið bítur og heimskautavindurinn gnauðar og allir geta tekið undir "nú er frost á Fróni, frýs í æðum blóð". Er þá ekki rétt að skoða raunveruleikann sem blasir við okkur og í framhaldi af því að segja okkur frá Parísarsasmkomulaginu og öllum loftslagsgjöldum.
Svo fer að verða kominn tími á að RÚV hætti einhliða áróðri um hamfarahlýnun í ófærð vegna frosta og snjóa. Þetta er vægast sagt aumkunarvert hjá RÚV trúboðinu.