Heitt loft og ber brjóst í Seðlabanka Íslands – aprílgabb Fréttarinnar

frettinInnlendarLeave a Comment

Í gær var hér fjallað um nýlega ráðningu Seðlabanka Íslands í nýja stöðu loftslags- og sjálfbærnifræðings og að boðað hefði verið til fundar í bankanum þar sem nýi sérfræðingurinn átti að kynna nýja starfið. Sagt var að seðlabankastjóri myndi segja frá því hvernig hamfarahlýnun og verðbólga haldast í hendur og að með lækkandi hitastigi jarðar yrði frekar unnt að kæla hagkerfið og slökkva verðbólgubálið. Einnig var sagt að nektarmálverk Gunn­laugs Blöndal, sem fjarlægt var úr almenn­ings­rými bankans árið 2019, yrði hengt upp á ný sem tákn um aukinn kvenleika og feminisma innan bankans, en nýr loftslags- og sjálfbærnifræðingur bankans er kvenmaður og feministi.

Hér var blandað saman réttu og skálduðu efni í tilefni 1. apríl. Hið rétta er að hin nýja staða var búin til en enginn kynningarfundur var haldinn í bankanum og því ekki boðið upp á kolefnissporalaust skordýrasnakk frá fyrirtækinu engisprettur.is.

Og ekkert er hægt að fullyrða um að innan Seðlabankans trúi menn í raun á samspil verðbólgu og loftslagsbreytinga. Þó skyldi engan undra enda eru háðsglósur skemmtikrafta nú orðnar óaðgreinanlegar frá raunveruleikanum.

Það má færa fyrir því rök að verðbólga og loftslagsbreytingar haldist í hendur. Lágir vextir ýta undir stórar og dýrar langtímafjárfestingar, enda líta þær vel út á blaði þegar vextir eru lágir, en þegar kemur í ljós seinna að engin innistæða var fyrir þeim fjárfestingum þá lenda þær á brunaútsölu og mikið fé tapast. Auðlindum Jarðar var því sólundað í steinsteypu og malbik sem engin eftirspurn var eftir og aðrar og nothæfari fjárfestingar urðu aldrei raungerðar.

Mögulega mun nýr loftslags- og sjálfbærnisérfræðingur benda á þetta. Mögulega mun loftslags- og sjálfbærnisérfræðingur Seðlabanka Íslands þess í stað atast í starfsmönnum fyrir pappírs- og prentaranotkun, of mikla lýsingu, of orkufrekt loftræstikerfi, of mikið kjötát (mælt með að starfsfólk Seðlabankans verði vegan), of margar flugferðir, of mikla bílanotkun, en Seðlabanki Íslands situr vitaskuld ofan á stærðarinnar bílastæðakjallara. Honum þarf jafnvel að loka og starfsmenn þurfa að vaða slyddu og snjó í fínu fötunum sínum eins og hver annar launamaður.

Og ekki er ólíklegt að brjóstamálverk Gunnlaugs Blöndals verði hengt upp á ný. Málverkið var tekið niður í kjölfar me-too umræðunnar árið 2019. Sú umræða er nú liðin undir lok og fjórum árum síðar eru ber brjóst komin í tísku á ný og krakkar í skólum farnir að leira og baka typpi og píkur.

Saga leikkona í þætti Gísla Marteins árið 2023 og málverk Gunnlaugs sem tekið var niður í Seðlabankanum 2019.

Allt á þetta eftir að koma í ljós, og hver veit nema apríl-gabb Fréttarinnar rætist, a.m.k. að hluta til, eins og svo margt annað háð nú til dags.

Skildu eftir skilaboð