Stefna Seðlabankans er að þrýsta fólki yfir í verðtryggð lán – eigið fé þurrkast upp

frettinInnlent, StjórnmálLeave a Comment

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að staðan á húsnæðismarkaðnum eigi eftir að versna og að eignarýrnun meðal skuldugra húsnæðiseigenda eigi eftir að aukast til muna. Ríkisstjórnin sé ekki að gera neitt í málinu. Aðgerðaleysi stjórnvalda og stefna Seðlabankans eru birtingarmyndir meðvitaðrar ákvörðunar um að færa fjármagn frá skuldurum til fjármagnseigenda. Þetta kemur meðal annars fram í viðtali Frosta Logasonar við Ragnar Þór  á hlaðvarpsveitunni Brotkast.

„Stjórnvöld og sveitarfélögin munu ekki hefja uppbyggingu á stórum svæðum, eins og t.d. í Keldnaholti eða Blikastaðalandinu eða inni í Úlfarsárdal fyrr en í fyrsta lagi eftir þrjú, fjögur ár, þannig að þetta verða bara svona þéttingarreitir, sem eru rándýrir. Verktakarnir og lóðahafar lóða sem hægt er að byggja á munu halda að sér höndum. Þannig að það er bara gott að þínir áheyrendur og áhorfendur geri sér grein fyrir því að það er ekkert að fara að breytast til hins betra, staðan er bara að versna og hún mun versna til mikilla muna áður en hún getur nokkurn tíma batnað.“

Ragnar segir það líka mikilvægt að skýrt komi fram að stjórnvöld séu ekki að fara að aðhafast neitt í málinu, að þau séu ekki að fara að breyta um stefnu. Ekki heldur Seðlabankinn. Stefnan er svona:

„Að þrýsta öllum yfir í verðtryggðu lánin, sem mun byrja að éta upp eigið fé eins og gerðist í eftirmálum hrunsins. Munurinn á því sem gerðist rétt eftir hrun er sá að þá fengum við þetta í einu risastóru skoti. Það sem er að fara að gerast núna er að hægt og bítandi mun eigið fé étast upp og við munum sjá risastóra hópa, sérstaklega ungt fólk og fólk sem lenti í hruninu og er kannski nýbúið að rétta sig af með einhverjum hætti, ganga í gegnum sömu hlutina aftur.“ 

Ragnar segir að allar aðgerðir Seðlabanka og ríkisstjórnarinnar séu til þess fallnar að minnka framboð á húsnæði í stað þess að auka það og þessar aðgerðir muni vandann. Þetta sé meðvituð ákvörðun.

„Ég tel að Seðlabankinn viti nákvæmlega hvað hann er að gera. Hann er að gera það sama og var gert hér í eftirmálum hrunsins, þetta var bara meðvituð og upplýst ákvörðun um að fara í stórfellda eigna- og fjármagnsflutninga frá skuldsettum heimilum og fyrirtækjum yfir til sérhagsmunaafla og fjármálakerfisins og þeirra sem raunverulega stýra landinu hérna bak við tjöldin.“ 

Brot úr viðtalinu má sjá hér og þáttinn í heild sinni á brotkast.is

Skildu eftir skilaboð