Nýtt hús Stofnunar Árna Magnússonar vígt á sumardaginn fyrsta

frettinInnlentLeave a Comment

Nýtt hús Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Háskóla Íslands, sem fram að þessu hefur verið kallað Hús íslenskunnar, verður vígt á sumardaginn fyrsta, 19. apríl, og nafn hússins afhjúpað. Daginn eftir, 20. apríl, verður húsið opnað almenningi. Þá geta gestir skoðað húsnæðið áður en flutt er inn í það og starfsemi hefst. Fjölbreytt dagskrá verður í húsinu þennan dag og allir eru velkomnir. Húsið verður opið frá 10–16.

Húsnæðið mun hýsa starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands og verður miðstöð rannsókna og kennslu í íslenskum fræðum. Þar verða jafnframt varðveitt frumgögn um íslenska menningu, þ.e. handrit, skjöl, orða- og nafnfræðisöfn og þjóðfræðasöfn.

Í byggingunni eru ýmis sérhönnuð rými, svo sem fyrir varðveislu, rannsóknir og sýningu á fornum íslenskum skinnhandritum, vinnustofur kennara og fræðimanna, lesaðstaða fyrir nemendur, fyrirlestra- og kennslusalir og bókasafn með lesaðstöðu.

Hornsteinar arkitektar teiknuð húsið.

Dagskrá o.fl. má finna hér.

Skildu eftir skilaboð