Kynáttunarvandi ekki lengur skilgreindur sem sálrænn vegna pólitísks þrýstings

frettinHelga Dögg Sverrisdóttir, KynjamálLeave a Comment

Eftir Helgu Dögg Sverrisdóttur kennara:

Það var pólitískur þrýstingur í Danaveldi sem fékk lækna til að hverfa frá skilgreiningunni að kynáttunarvandi væri sálrænn vandi.

Á vefnum sundhed.dk stóð áður, en hefur nú verið fjarlægt því einhverjum fannst óviðeigandi að þetta stæði.

„Í Danmörku var ákveðið frá 1. janúar að hætta með skilgreininguna ICD-10 eftir pólitískan þrýsting og fjarlægja „transkønnethet“ sem andlega sjúkdómsgreiningu. Maður óskaðir eftir að undirstrika að hvorki væri um að ræða andlegan eða líkamlegan sjúkdóm.“

“I Danmark valgte man fra 1. januar 2017 at forlade ICD-10 klassifikationen efter et politisk pres for at fjerne fra det psykiatriske system. Man ønskede dermed at understrege, at der ikke er tale om hverken psykiatrisk eller somatisk sygdom.”

Eftir því sem ég best veit eltu íslenskir stjórnmálamenn málefnið og því var breytt hér á landi líka. Með slíkum breytingum er ljóst að börn og ungmenni sem kljást við kynáttunarvanda eiga ekki rétt á sálfræðimeðferð vegna ákvörðunar stjórnmálamanna. Þau glíma ekki við andlegan eða líkamlegan vanda.

Dómur sem hnykkti á þessu féll ekki fyrir löngu, hér á landi, um mann sem vildi nýta veikindarétt sinn til að breyta kynfærum sínum. Þar sem ekki erum veikindi að ræða fékk hann ekki laun í leyfinu til að framkvæma aðgerðina. Launagreiðanda bar ekki að greiða launin. Kynrænt sjálfstæði spilaði þar stórt hlutverk.

Transkoen.dk segir frá.

Skildu eftir skilaboð